Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi. Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi Túnahverfi (íbúðarsvæði ÍB5, miðsvæði M3 og athafnasvæði AT2) í Vík.

Túnahverfi - Deiliskipulagsbreyting

Breytingin nær til lóðanna við Mylluland 4-6, Króktún 6-6a, 8-8a, 14 – 22 og 25, leiksvæðisins við Króktún, auk áfangaskiptingar innan deiliskipulags.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 27. maí til og með 8. júlí 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 8. júlí 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps