Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi. Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi Bakkar (íbúðarsvæði ÍB3 og verslun- og þjónustusvæði VÞ3) í Vík.

Bakkar - Deiliskipulagsbreyting

Breytingin nær til lóðarinnar við Mýrarbraut 11. Jafnframt verði fært inn ákvæði sem kveður á um að útlit bygginga verði háð samþykki ráðsins ásamt uppsetningu nýrra hraðhleðslustöðva.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 24. apríl til og með 5. júní 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 5. júní 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps