Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 – Ránarbraut.
Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér kynnt lýsing aðalskipulagsbreytingar.
Um er að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti og breytingu í greinargerð. Gerð er breyting á samfélagsþjónustureit S4 sem er minnkun úr 0,6 ha í 0,32 ha. Tekið er út óbyggð lóð fyrir hjúkrunarheimili og verður því fundinn nýr staður. Stofnaður verður nýr miðsvæðisreitur sem fær nafnið Ránarbraut 3 (M9). Innan miðsvæðisreit M9 er gisting ekki leyfileg en innan reitsins er gert ráð fyrir skrifstofum, léttri veitingarstarfsemi (kaffihús eða bakarí), dagvöruverslun og íbúðum. Þá er almennum skilmálum fyrir miðsvæði breytt, er varðar hámarkshæð bygginga á miðsvæðum.
Skipulagslýsingin liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 2. til og með 23. mars 2026.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 23. mars 2026.