Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi

Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér kynnt lýsing aðalskipulagsbreytingar.

Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 – Hesthúsasvæði og iðnaðarsvæði.

Viðfangsefni breytingarinnar er breyting á afmörkun landnotkunarreita austast í Vík, norðan Austurvegar. Íþróttasvæði ÍÞ2 (hesthúsasvæði) er fært til vesturs inn á hluta opna svæðisins OP8, sem minnkar að sama skapi. Iðnaðarsvæði I5 stækkar yfir austasta hluta núverandi ÍÞ2, þannig að ÍÞ2 og I5 liggja hvort við annað. Norðan þjóðvegarins (I5) verður almennt iðnaðarsvæði, og sú sorpförgun sem þar var áður færist yfir á I4.

Skipulagslýsingin liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 27. nóvember til og með 18. desember 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 18. desember 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps