Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér kynnt lýsing aðalskipulagsbreytingar.
Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 – Smiðjuvegur 1.
Viðfangsefni breytingarinnar er breyting á skilgreiningu miðsvæðis M3 í verslun og þjónustu, ásamt því að bæta við gistirýmum.
Skipulagslýsingin liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. október til og með 18. nóvember 2026.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 18. nóvember 2026.