Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps til forkynningar í samræmi við 2. mgr 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Forkynning á breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 – Holt 2.

Viðfangsefni breytingarinnar er nýr reitur fyrir verslun og þjónustu VÞ47 Holt 2 fyrir gistiþjónustu með 20 gistirúm og 500 m.

Vinnslutilagan liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 23.október til og með 20. nóvember 2026.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Smiðjuvegi 7, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 20. nóvember 2026.

George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps