Kötlusetur ses. auglýsir hér með laust til leigu atvinnuhúsnæði að Víkurbraut 28, Fnr. 218-8847, til reksturs veitingastaðar. Húsnæðið er í Brydebúð í Vík og hefur um langt skeið hýst veitingarekstur.
Um er að ræða um 75 m2 veitingasal, 24 m2 eldhús, 15 m2 salerni auk 36 m2 rýmis fyrir starfsmannaaðstöðu, lager og vörumóttöku (alls 150 m2). Húsnæðið leigist án lausamuna og rekstraraðili þarf því að setja upp eigin búnað í eldhúsi og innrétta veitingasal á eigin kostnað.
Stjórn Kötluseturs ses. hefur ákveðið að ráðist verði í viðhald á húsnæðinu áður en hafin verði starfsemi í því að nýju. Sett verða ný inntök fyrir vatn og rafmagn og lagnir lagfærðar eins og þörf er á. Jafnframt verður sett nýtt gólfefni á veitingasal og baðherbergi lagfærð.
Leitað er að metnaðarfullum rekstraraðila sem hefur áhuga á að byggja upp vandaðan veitingarekstur í húsnæðinu og nýta þau tækifæri sem felast í góðri staðsetningu og sterkri tengingu við menningu og mannlíf á svæðinu.
Áhugasamir aðilar eru beðnir um að skila inn umsóknum með eftirfarandi upplýsingum:
Við mat á umsóknum verður litið til heildarhagsmuna, þar á meðal rekstrarhugmyndar, reynslu og boðinna leigukjara.
Kötlusetur ses. áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum eða ganga til samninga við þann aðila sem best uppfyllir markmið stjórnar, að teknu tilliti til heildarmats á umsóknum.
Frestur til þess að skila inn umsóknum er til kl. 12:00 þann 7. apríl 2026.
Áhugasamir geta óskað eftir því að fá að skoða húsnæðið og skulu þeir þá hafa samband við formann stjórnar sem veitir allar nánari upplýsingar í tölvupósti á netfangið: sveitarstjori@vik.is