Mýrdalshreppur óskar Ann Peters innilega til hamingju með að hafa hlotið fyrstu styrkveitinguna úr Hörpusjóði SASS fyrir verkefnið „Voices of Vík: Language, Culture & Community“.
Ann hlaut 1.000.000 kr. styrk til verkefnisins, sem stendur yfir frá ágúst 2026 til júlí 2027.
Hörpusjóðurinn var stofnaður til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur og er ætlað að styðja verkefni sem stuðla að samfélagsþróun, inngildingu og samvinnu.
Ann hefur nýlega kynnt verkefnið, Raddir Víkur eða Voices of Vík.
Markmið verkefnisins er að skapa opinn og notalegan vettvang þar sem íbúar af ólíkum uppruna geta hist, kynnst betur og styrkt tengsl sín á milli.
Áhersla verður meðal annars lögð á menningu, íslenskunám, samtal, sköpun og fjölbreytt samfélagsstarf.
Verkefnið samanstendur meðal annars af:
Upphaf verkefnisins er samvera við varðeld í Syngjanda, þann 21. ágúst sem kallast Ferðalag okkar til Víkur en nánari upplýsingar um alla viðburði og dagskrá er að finna neðst í þessari grein.
Mánaðarlegir hittingar við varðeld / Monthly Campfire Series
Bíókvöld / Town Movie Nights:
Hæfileikakeppni / Vik's Got Talent Showcase
Vík talar tungumálakvöld / Vík Speaks Language Group Nights:
https://www.facebook.com/groups/vikspeaks
Raddir Víkur: Tungumál, Menning og Samfélagsverkefni / Voices of Vík: Language, Culture & Community Project:
https://www.facebook.com/VoicesOfVik/