Álagning fasteignagjalda

Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Mýrdalshreppi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til og með 1. október alls 9 gjalddagar.

Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Mýrdalshreppi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.

Vinsamlega athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar til þeirra sem eru fæddir á árinu 1944 eða fyrr né þeirra sem hafa afpantað seðla, heldur verður einungis stofnuð krafa í heimabanka með sama hætti og á síðasta ári.

Ekki verða sendir út álagningarseðlar á pappírsformi en hægt er að nálgast nýjustu álagningaseðlana á island.is „mínar síður“ 

Álagningarseðill má nálgast á eftirfarandi hátt:

  1. Ferð inná www.island.is
  2. Skráir þig inn á "mínar síður"
  3. Smellir á "Pósthólf - er bréf til þín?"
  4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2022" sem er að finna þar í listanum.

Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf eða prenta hann út.

Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega sem búa í eigin íbúð, miðast afslátturinn við eftirfarandi tekjumörk.

Við ákvörðun afsláttar skulu notaðar eftirfarandi viðmiðanir heildartekjur árið 2020. 

Einstaklingar

Hjón/sambýlisfólk

Tekjur

Afsláttur

Tekjur

Afsláttur

-

5.971.354

100%

-

8.361.013

100%

5.971.355

6.529.946

75%

8.361.014

8.919.605

75%

6.529.947

7.088.539

50%

8.919.606

9.478.198

50%

 

Ef einhverjir hafa ekki tök á að nálgast sinn álagningarseðil vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Mýrdalshrepps í síma 487-1210 eða á netfanginu myrdalshreppur@vik.is