Sveitarstjórn

676. fundur 24. mars 2025 kl. 11:00 - 11:48 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Björn Þór Ólafsson oddviti
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Páll Tómasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Viljayfirlýsing vegna fjármögnunar á göngum um Reynisfjall

2503009

Lögð fram drög að sameiginlegri viljayfirlýsingu Mýrdalshrepps, Skaftárhrepps og Hornafjarðar við Summu rekstrarfélag um fjármögnun á göngum í gegnum Reynisfjall.
Lagt var til að afgreiðslu málsins verði frestað til næsta reglulega sveitarstjórnarfundar.
Samþykkt samhljóða.

2.Fjárhagsáætlun 2025

2412001

Lagður fram viðauki I við fjárhagsáætlun 2025.
Lagt er til að gert verði ráð fyrir 10 m.kr. í fjárfestingu í varanlegum rekstrarfjármunum vegna kaupa á einingum fyrir smíðakennslu við Víkurskóla. Fjárfestingin hefur þau áhrif að handbært fé í árslok lækkar um sömu upphæð og verður þá í árslok 57,782 m.kr.
Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 11:48.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir