Sveitarstjórn

675. fundur 19. mars 2025 kl. 09:00 - 10:01 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Björn Þór Ólafsson oddviti
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Þórey Richardt Úlfarsdóttir
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Páll Tómasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá
Sveitarstjórn sendir einlægar samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda Pálma Kristjánssonar. Sveitarstjórn vill koma á framfæri þakklæti fyrir samfylgdina og framlag hans til samfélagsins í Mýrdalshreppi.

1.Skipulags- og umhverfisráð - 29

2503001F

  • Skipulags- og umhverfisráð - 29 Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs í liðum 1.5 og 1.6.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 29 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Litlu-Hóla og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 29 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Höfðabrekku, samhliða breytingu á skilmálum fyrir íbúðarbyggð og landbúnaðarland og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Ráðið tekur undir mikilvægi þess að eigandi láti útbúa ítarlegt hættumat sem liggi fyrir áður en frekari uppbygging fer fram við Höfðabrekku. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 29 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Ráðið telur mikilvægt að áfram verði gert ráð fyrir tengingu við Smiðjuveg milli hringtorga í skipulaginu. Vel er hægt að tryggja umferðaröryggi með góðu móti með gerð fráreina og vasa fyrir vinstri beygjur og ráðið óskar eftir góðu samstarfi við Vegagerðina við hönnun á þeim. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 29 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 29 Skipulags- og umhverfisráð heimilar fyrir sitt leyti að veitt verði stöðuleyfi skv. umsókninni. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.

2.Skipan í nefndir og ráð

2206015

Skipan aðalmanns í Skipulags- og umhverfisráð.

Gerð er tillaga að Anna Huld Óskarsdóttir taki sæti aðalmanns í ráðinu.
Samþykkt samhljóða.

3.Umsókn um byggingarleyfi - Víkurbraut 19

2408011

Tekin fyrir umsókn um byggingarleyfi að Víkurbraut 19 að undangenginni grenndarkynningu. Málið var kynnt næstu nágrönnum og bárust engan athugasemdir þar til fresturinn rann út.
Sveitarstjórn heimilar fyrir sitt leyti útgáfu byggingarleyfis.

4.Smiðjuvegur 24 - umsókn um lóð

2503002

Lögð fram umsókn um lóðina Smiðjuveg 24b frá Reyni Erni Eyþórssyni.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða umsóknina.

6.Fundargerðir stjórnar SASS

2311016

Lögð fram til kynningar.

7.Fundargerðir stjórnar FSRV

2404005

Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:01.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir