Málefni aldraðra

Meðal verkefna Félagsþjónustunnar eru ráðgjöf og leiðbeiningar til aldraðra og aðstandenda þeirra varaðandi ýmis persónuleg mál, réttindamál og þjónustuúrræði fyrir aldrað fólk.

Þjónusta við aldraða er unnin á grunni laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.

Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu hjá Félagsþjónustu Rangárvalla – og Vestur Skaftafellssýslu tekur við umsóknum um heimsendan mat frá Ásahrepp, Rangárþingi Ytra og Eystra og umsóknum varðandi máltíð sem snædd er á Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri eða Hjallatúni í Vík. Einnig er hægt að prenta út umsókn og senda til félagsþjónustunnar.

Dagþjónusta á Hjallatúni: Þar stendur fólki til boða að fá heitan mat og kaffitíma, fá aðstoð við böðun og að taka þátt leikfimi og félagsstarfi

Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu er Aðalheiður Steinadóttir sími: 487-8125 og netfang: adalheidur@felagsmal.is