Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 37Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir yfirferðina. Ráðið leggur jafnframt til við sveitarstjórn að hugað verði að því að áætla fjármagn á fjárhagsáætlun næsta árs í verkefni til þess að tryggja fjöltyngdum börnum og fjölskyldum þeirra nauðsynlegan stuðning.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 37Ráðið þakkar Ann fyrir yfirferðina. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að útbúinn verði styrktarsamningur enda styður verkefnið vel við markmið inngildingarstefnu sveitarfélagsins.Bókun fundarDGJ vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið með gjaldfrjálsri notkun á húsnæði sveitarfélagsins og framlagi að upphæð 500.000 kr. Sveitarstjóra er falið að ganga frá styrktarsamning.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 37Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að sótt verði um í verkefnið í samræmi við framlögð gögn.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 37Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna og leggur til að Þórey Richardt Úlfarsdóttir, Björn Þór Ólafsson og Brynjar Ögmundsson skipi hönnunarteymi. Ráðið mælist til þess að verkefnisstjóri hafi jafnframt samráð við fagráð sveitarfélagsins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 37Ráðið leggur til við sveitarstjórn að leitað verði leiða til að bjóða upp á félagsmiðstöð eða frístundastarf fyrir aldurshópinn 10-12 ára. Jafnframt leggur ráðið áherslu á að framtíðarfyrirkomulag frístundastarfs verði skoðað í því augnamiði að ráða í stöður til þess að halda utan um dægradvöl, félagsmiðstöð og aðra frístund.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins og felur sveitarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum til að halda utan um frístund fyrir 10-12 ára. Að öðrum kosti verði leitað eftir samstarfi við foreldrafélag Víkurskóla um verkefnið.
Öldungaráð - 1Öldungaráð leggur til við sveitarstjórn að skoðað verði að skipað verði að nýju í rekstrarnefnd Hjallatúns. Útbúa þyrfti erindisbréf fyrir nefndina og skilgreina hlutverk hennar vel svo að hún geti stutt sem best við starfsemi hjúkrunarheimilisins. Formanni er falið að skoða fyrirkomulag annarra hjúkrunarheimila og bera málið undir hjúkrunarforstjóra Hjallatúns. Öldungaráðið hvetur sveitarfélagið jafnframt til þess leita leiða til að halda úti öflugra frístundastarfi fyrir heimilisfólk Hjallatúns og eldri borgara.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Starfshópur umhverfismála - 2Ráðið leggur til við sveitarstjórn að verktaki verði fenginn í að koma álímdum bílhræjum til förgunar. Ráðið leggur jafnframt til að fulltrúi HSL verði fenginn aftur til Víkur í frekari aðgerðir. Starfshópurinn leggur til að samhliða málun á húsnæði sveitarfélagsins verði handriðið við Víkurá málað. Starfshópurinn leggur til að útbúið verði skilti sem vísar að Víkurkirkju við gatnamót Suðurvíkurvegar og Hátúns. Starfshópurinn felur sveitarstjóra að senda lóðarhöfum á Smiðjuvegi erindi og hvetja lóðarhafa til þess að ráðast í tiltekt á svæðinu og skoða uppsetningu á girðingum þar sem lausamunir eru geymdir.
Starfshópurinn vill færa kvenfélagi Hvammshrepps þakkir fyrir sumarblóm sem sveitarfélaginu voru færð að gjöf í sumar. Jafnframt vill hópurinn færa þeim íbúum þakkir sem hafa tekið þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins.
Starfshópurinn vill hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að taka höndum saman við að fegra bæinn fyrir Regnbogahátíðina sem haldin verður dagana 8.-11. október nk.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu starfshópsins.
Starfshópur umhverfismála - 2Starfshópurinn samþykkir tillöguna.Bókun fundarSveitarstjórn samþykkir að sett verði upp grenndarstöð/endurvinnslubar við Smiðjuveg.
Skipulags- og umhverfisráð - 45Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 45Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna með fyrirvara um að afmörkun verði lagfærð í samræmi við lóðarmörk og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 45Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að útfæra nákvæma staðsetningu í samráði við umsækjanda og byggingarfulltrúa. Ráðið mælist til þess að umsækjandi verði tímanlega búin að sækja um nauðsynlegar skipulagsbreytingar ef ætlunin er að starfsemin vari lengur en til árs. Ráðið áréttar að yfirstandandi er endurskoðun á almennum reglum um stöðuleyfi í sveitarfélaginu og fyrirhugað að henni verði lokið á þessu ári. Samþykkt: ÞHG, GÞG, MÖS, AHÓ, VG Á móti: DGJ SSÞ sat hjáBókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
5.Umsókn um styrk til Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands
2609007
Lögð fram beiðni um framlag til sjóðsins fyrir árin 2026-2028.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið með árlegum styrk að upphæð 75.000 kr. til næstu þriggja ára.
6.Erindi frá VR, LÍV og Rafiðnaðarsambandinu
2609009
Lagt fram erindi frá VR, LÍV og Rafiðnaðarsambandinu til sveitarstjórnar.
Sveitarstjóra falið að útbúa drög að svari í samræmi við umræður fundarins.
7.Umsókn um styrk
2603003
Lögð fram umsókn um styrk frá Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur fyrir söfnun og varðveislu heimilda um stríðsárin og dvöl hermanna í Dyrhóla- og Hvammshreppi.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 200.000 kr.
8.Fjárhagsáætlun 2026
2511007
Lagður fram viðauki IV við fjárhagsáætlun 2026.
Sveitarstjórn staðfestir viðaukann.
9.Fundargerðir stjórnar FSRV
2404005
Lögð fram aðalfundargerð auk fundargerða stjórnar auk fylgiskjala.
Lagður er fram viðauki við fjárhagsáætlun sem þarfnast staðfestingu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn staðfestir fyrir sitt leyti viðauka við fjárhagsáætlun byggðasamlagsins.
10.Fundargerðir stjórnar SASS
2311016
11.Fundargerðir stjórnar Bergirsans
2302009
Lögð fram aðalfundargerð og fundargerð stjórnar.
12.Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands
2401022
Lögð fram ársskýrsla 2025 auk fundargerða heilbrigðisnefndar.
13.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga