Sveitarstjórn

695. fundur 27. ágúst 2026 kl. 13:00 - 15:45 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Björn Þór Ólafsson oddviti
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Þórey Richardt Úlfarsdóttir Nefndarmaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
  • Magnús Örn Sigurjónsson Nefndarmaður
    Aðalmaður: Daníel Óliver Sveinsson
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá
Óskað var eftir því að fundargerð starfshóps sjóvarna yrði bætt við dagskrá fundarins.
Samþykkt samhljóða.

1.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12

2606004F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Afgreiðslu málsins var frestað á 10. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa vegna athugsemda við brunavarnir mannvirkisins. Búið er að bregðast við fyrrgreindum athugasemdum.
    Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Afgreiðslu málsins var frestað á 11. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 43. fundi sínum og gerði ekki athugasemdir við útlit hússins mv. fyrirliggjandi hönnunargögn.
    Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 43. fundi sínum og heimilar fyrir sitt leyti að stöðuleyfi verði veitt en mælist til þess að framkvæmdaaðili taki tillit til íbúa við nærliggjandi götu og að ónæði hljótist ekki af framkvæmdinni. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins á 694. fundi sínum.
    Samþykkt er að veita stöðuleyfi frá 15. júní 2026 - 30. september 2026.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Ekki er gerð athugasemd við veitingu starfsleyfis með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu eftir úttekt byggingarfulltrúa.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Ekki er gerð athugasemd við veitingu starfsleyfis með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu eftir úttekt byggingarfulltrúa.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13

2608003F

3.Skipulags- og umhverfisráð - 44

2607001F

  • 3.1 2605003 ASK BR - Holt 2
    Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Giljur og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Ytri-Sólheima 1a og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Ráðið frestar afgreiðslu málsins og vísar því til frekari umfjöllunar á vinnufundi.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga. Skipulagfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun skipulagstillöguna til yfirferðar áður en tillagan verður auglýst.
    Samþykkt: ÞHG, VG, GÞG, MÖS, DGJ
    Á móti: ÞG
    SSÞ sat hjá
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
    Samþykkt: BÞÓ, ÞRÚ, MÖS
    AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 ÞHG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að aðalskipulagsbreytingin verði unnin af sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 ÞHG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Ráðið telur að breytingin samræmist ekki byggðamynstri svæðisins og heimilar því ekki að skipulagi verði breytt í þá veru að íbúð verði breytt í skammtímaleigu.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar AHÓ vék af fundi við afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 ÞHG og VG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
    Breytingin telst það óveruleg að ekki er talin þörf á að grenndarkynna hana. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 ÞHG og VG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
    Breytingin telst það óveruleg að ekki er talin þörf á að grenndarkynna hana. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • 3.11 2506004 DSK Giljur
    Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Skipulags- og umhverfisráð telur að brugðist hafi verið við framkomnum athugasemdum og samþykkir deiliskipulagsbreytinguna enda samræmist hún skilmálum aðalskipulags og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti afmörkun og nafnabreytingu lóðarinnar í samræmi við framlagða merkjalýsingu, þó með þeim fyrirvara að bæta þurfi kvöð um aðkomu á lóðinni inn í merkjalýsinguna. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Ráðið gerir ekki athugasemdir við að lóðin verði stofnuð í samræmi við merkjalýsinguna. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Ráðið gerir ekki athugasemdir við að framkvæmdaleyfi verði gefið út í samræmi við umsóknina. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 GÞG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Ráðið frestar afgreiðslu málsins og vísar því til frekari umfjöllunar á vinnufundi þar sem reglur um stöðuleyfi verða teknar til endurskoðunar.
    ÞG sat hjá við afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 Þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, telur ráðið að falla megi frá grenndarkynningu, þar sem engir aðrir en sveitarfélagið sjálft og umsækjandi eru taldir eiga hagsmuna að gæta. Ráðið gerir því ekki athugasemdir við umsóknina. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44 VG og ÞHG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
    Þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, telur ráðið að falla megi frá grenndarkynningu, þar sem engir aðrir en sveitarfélagið sjálft og umsækjandi eru taldir eiga hagsmuna að gæta. Ráðið gerir því ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 44

4.Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 36

2608002F

  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 36 Ráðið þakkar skólastjóra fyrir yfirferðina.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 36 Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir yfirferðina. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 fyrir kaupum á nýjum kastala á leikskólalóð og rólu á ungbarnasvæði. Ráðið mælist jafnframt til þess að áhaldahús í samstarfi við verktaka vinni úrbótaáætlun vegna þeirra atriða sem ganga þarf frá við húsnæði skólans. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins og samþykkir að gert verði ráð fyrir 5 m.kr. í kaup á nýjum kastala á leikskólalóð og rólu á ungbarnasvæði með viðauka II við fjárhagsáætlun 2026. Fjárfestingin hefur þau áhrif að handbært fé í árslok lækkar um sömu upphæð og verður þá í árslok 71,553 m.kr.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 36 Ráðið þakkar Ailsu fyrir yfirferðina.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 36 Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti framlögð drög að samningi og skóladagatal 2026-2027. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.

5.Fjallskilanefnd - 9

2608001F

  • 5.1 2608001 Fjallskil 2026
    Fjallskilanefnd - 9 Tillaga lögð fram að taka 3. safn út úr fjallskilum ? (samþykkt samhljóða).
    -
    Farið í 1., 2. safn og svo hugmynd um mögulegt dróna safn í samstarfi við Björgunarsveit Víkverja ef þau eru til í slíkt.
    -
    Drónamaður þyrfti að fá greitt fyrir sína vinnu eins og smali í eftirleit.

    Hafdís tekin úr fjallskilum Höfðabrekku- og Kerlingardalsafrétt.

    Hafdís tekin úr fjallskilum Höfðabrekku- og Kerlingadalsheiði og einum manni bætt við Skammadal þar í 1. safn.

    Dalaheiði óbreytt.

    Í Heiðarheiði og Gatnahraun er Hafdís tekin úr fjallskilum og einum manni bætt við Árna frá því í fyrra.

    Einum manni bætt við Ólaf Þorsteinn og einum manni bætt við Jónas í 2. Safn í Heiðargili og Heiðardal.

    Fjallskil í Koltungum og Svínatungum haldast óbreytt frá fyrra ári. Í fyrirstöðu þar er Hafdís tekin úr skilum og einum manni bætt við Giljur.
    Fagradals- og Arnarstakksheiði fjallskil haldast óbreytt.

    Háfells og Höfðabrekkuháls fjallskil, eini maður Jónasar tekin út úr fjallskilum. Einu manni bætt við Skammadal í staðinn.

    Í Háfell fyrirstöðu er Hafdís tekin út úr fjallskilum og einum manni bætt við Kerlingardal.

    Óbreytt fjallskil í Búrfelli og Dalahögum.

    Rætt um úrlausn smölunnar í Stórhöfða, Holtsgili og í Holts-, Grófar- og Keldudalsheiði.
    -
    Leysa með dróna skoðun þar sem engu fé er sleppt þar upp lengur. Sendur drónamaður ásamt staðkunnugum manni.
    -
    Ekki víst að allt sjáist úr lofti inn í Holtsgili svo lagt á einn mann þar í lok september.

    Í Stórhöfða var Atli tekin úr fjallskilum og aðeins 1 maður á Guðjón til að fylgja drónamanni.

    Holtsgil ? óbreytt

    Holts, Grófar- og Keldudalsheiði ? aðeins einn maður lagður á Guðjón.

    Fellsheiði tekin út úr fjallskilum.
    -
    Ef þarf að smala þar verða auka tímar sendir út á það.

    Heimaheiði og Eystri Sólheimaheiði óbreytt fjallskil einnig á Ystheiði og Lakalandi.

    Þórólfur sagði af sér sem fjallkóngur í Kjósunum. Tillaga um Jónas Erlendsson sem fjallkóng þar. Tillaga samþykkt.

    Tillaga lögð fram að breyta smölum í Kjósunum. Að prófa að reka fé austur úr Kjósunum og niður að Fagradal. Tillaga samþykkt til prufunar þetta árið og sjá hvernig gengur.

    Lagt var á einn mann frá Görðum í Kjósirnar, sá tekin út þar sem ekkert fé er þar lengur.
    Þórólfur tekin út úr fjallskilum í Kjósunum, fé hans fer ekki lengur þangað.
    Einum manni bætt við Jónas og 1 maður á Árna Gunn.

    Dagsetningar smölunar 2026

    Fagradalsheiði - 29. ágúst 2026
    Heiðargil og Heiðardalur ? 3. september 2026
    Dalaheiði, Búrfell og Dalahagar 5. september 2026
    Heiðarheiði ? 5. september 2026
    Höfðabrekku- og Kerlingardalsafréttur 11. september 2026
    Höfðabrekku og Kerlingardalsheiði 12. september 2026
    Háfell og Höfðabrekkuháls ? 16. september 2026
    Koltungur og Svínatungur ? 19. september 2026
    Eystri Sólheimaheiði / Heimaheiði ? 13. september 2026
    Ystheiði og Lakaland ? 12. september 2026
    Stórhöfði ? 25. september 2026
    Skálfandi, Lambhagi, Holts- og Grófarheiði ? 25. september 2026
    Holtsgil ? 25. september 2026.

    Breyting álagningar

    Álagningu breytt í Heiðargili og Heiðardal. Skipt í tvennt á álagningarseðli. Heiðargils smalar sér álagning og Heiðardals smalar sér.
    3 menn í 1. safn í Heiðargil ? hærra verð (26.335 kr./mann, verð síðan 2025)
    5 menn í 1. safn, 2 menn í 2. safn í Heiðardal ? lægra verð (14.394 kr., verð síðan 2025)
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
  • 5.2 2308025 Önnur mál
    Fjallskilanefnd - 9 Heiðarvegir
    Karl Pálmason ætlar að athuga með Höfðabrekkuafréttisveginn.
    Gunnar Ólafsson beðin um að athuga með veginn inn úr Heiðarheiði.

    Fjallvegasjóður
    Fjallskilanefnd vill koma með ábendingu til hreppsnefndar varðandi fjallvegasjóð. Að sækja um í hann til Vegagerðarinnar til að viðhalda fjallvegunum í sveitarfélaginu.

    Girðingar umhverfis Vík
    Fjallskilanefnd vill ítreka við hreppsnefnd að gera þarf við girðingar kringum þorpið áður en fé fer út á vorin. Vegna þess að girðingarviðhaldi var ekki sinnt í vor er töluvert af fé innan girðingar.
    Fjallskilanefnd fer því fram á að sveitarfélagið greiði eftirleitartíma fyrir smölun á þessu fé.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir að greitt verði fyrir smölun bæjarlandsins.

6.Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 37

2608006F

  • 6.1 2209026 Skýrsla sveitarstjóra - Mayor's report
    Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 37
  • 6.2 2209031 Kynning frá forstöðukonu Kötluseturs - Presentation from the director of Kötlusetur
    Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 37 Ráðið samþykkir að taka að sér undirbúning alþjóðlegs matarsmakks sem skipulagt verður á föstudeginum 9. október nk. Formanni er falið að halda utan um skipulagið í samráði við ráðið. - The Council agrees to take responsibility for preparing an international food tasting event, to be held on Friday, 9 October. The Chair is tasked with coordinating the arrangements in consultation with the Council.
  • 6.3 2403011 Skipulag funda og starfsáætlun - Meeting and work plan
    Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 37 Ráðið samþykkir að skoða taka upp verkefnið Notum málið. Formaður mun taka að sér að kanna hverjir gætu tekið að sér að halda utan um verkefnið.
    Rætt var um stöðu verkefnis Mímis símenntunarmiðstöðvar. Ráðið óskar eftir kynningu á verkefninu og felur sveitarstjóra að óska eftir fundi.
    The Council agrees to explore restoring the Notum málið initiative. The Chair will look into who could take responsibility for coordinating the project.
    The status of the project run by Mímir Continuing Education Centre was discussed. The Council requests a presentation on the project and tasks the Mayor with arranging a meeting.

7.Starfshópur um sjóvarnir - 1

2608005F

  • 7.1 2203006 Sjóvarnir í Víkurfjöru
    Starfshópur um sjóvarnir - 1 - Starfshópurinn samþykkir að úttektaraðili verði fenginn til þess að meta ástand útihúsa austan við Smiðjuveg sem orðið hafa verið fyrir miklum skemmdum, í samstarfi við húseigendur. Verði húsin dæmd ónýt yrði þess farið á leit við Náttúruhamfaratryggingar að greiddar verði bætur svo hægt sé að fjarlægja húsin, enda útséð að þau eru enn í mikilli hættu vegna landrofs.
    Samþykkt samhljóða.
    - Starfshópurinn leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Fagradalsfjöru verði fellt úr gildi vegna landrofs á svæðinu.
    Samþykkt samhljóða. - Jóhannes tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.
    - Fulltrúar Vegagerðarinnar hafa boðið starfshópnum til fundar miðvikudaginn 26. ágúst.
    Boðað verður til annars fundar í starfshópnum í framhaldi af fundi með Vegagerðinni.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu starfshópsins.
    Fulltrúar starfshópsins funduðu með Vegagerðinni í framhaldi af fundinum þar sem rædd var útfærsla af flóðvörn og framtíðarlausnir gegn landrofi á svæðinu. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við að Vegagerðin reisi bráðabirgða flóðvörn fyrir Smiðjuveg og þjóðveg 1 þar fyrir austan, þrátt fyrir að hún sé ekki í samræmi við skipulag, enda verði unnið að framtíðarlausnum í framhaldinu. Sveitarstjórn lýsir sig reiðubúna til samstarf um slíkar lausnir og hvetur til þess að undirbúningi þeirra verði flýtt eins og kostur er.

8.Erindi frá Samherja, félagi eldri borgara í Mýrdalshreppi

2503006

Lagt fram erindi frá Samherja, félagi eldri borgara í Mýrdalshreppi.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið. Sveitarstjórn styðst við niðurstöður frumathugunar Framkvæmdasýslunnar sem leiddi í ljós að fyrirhuguð staðsetning á Sléttuvegi væri besti kostur. Um leið og aðstaða heimilis- og starfsfólks stórbatnar með nýju hjúkrunarheimili þá batnar einnig aðgengi að þjónustu í nágrenninu. Undirritað hefur verið samkomulag við ríkið um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og sveitarstjórn telur ekki forsendur til að rifta því samkomulagi.

9.Jarðhitaleit í Vík

2501006

Fulltrúar RARIK mættu á fundinn og kynntu yfirstandandi undirbúning að jarðhitaleit í Vík. ÍSOR hafa undanfarið unnið að því að kortleggja svæðið í því augnamiði að finna álitlega staði fyrir tilraunaholur. Vonir standa til þess að tilraunaboranir hefjist nú í haust. Jafnframt voru kynnt áform um að settur verði upp hleðslugámur til þess að kerfið í Vík þoli betur álagspunkta í tengslum við hraðhleðslu bíla. Rætt var um mikilvægi þess að líta til framtíðar og í því tilliti að efla tengingu rafkerfisins við flutningskerfi Landsnets.

10.Hönnun viðbyggingar við Víkurskóla

2509006

Skipan í hönnunarteymi.
Sveitarstjórn samþykkir að Þórey Richardt Úlfarsdóttir og Kristina Hajniková sitji í hönnunarteymi f.h. fjölskyldu-, frístunda- og menningarráðs og Þorgerður Hlín Gísladóttir og Anna Huld Óskarsdóttir f.h. skipulags- og umhverfisráðs.

11.Markaðs- og fjölmenningarfulltrúi

2608010

Tillaga að nýju starfi.
Sveitarstjórn samþykkir að stofnað verði 100% stöðugildi markaðs- og fjölmenningarfulltrúa Mýrdalshrepps og felur sveitarstjóra að undirbúa auglýsingu og ráðningu.

Fundi slitið - kl. 15:45.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir