Lögð fram tilboð í utanumhald ráðningarferlis fyrir starf sveitarstjóra.
Sveitarstjórn samþykkir tilboð Mögnum í utanumhald ráðningarferlis fyrir starf sveitarstjóra og felur oddvita að halda utan um ráðningaferlið.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt tímabundna endurnýjun ráðningarsamnings starfandi sveitarstjóra og skulu starfslok miðast við næstu mánaðarmót frá því að ráðið hefur verið í starfið.
4.Ársreikningur 2025
2605001
Síðari umræða um ársreikning Mýrdalshrepps 2025.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.826 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.709 millj. kr.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,33% en lögbundið hámark þess er 0,50%. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hámark þess og í C-flokki nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess. auk heimildar sveitarstjórnar til að hækka álagningu A og C flokkanna um allt að 0,25%.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 317 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 296 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.436 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 2.656 millj. kr.
Sveitarstjórn samþykkir ársreikning fyrir árið 2025 við síðari umræðu.
5.Endurskoðun samþykktar um stjórn og fundarsköp Mýrdalshrepps
2404017
Fyrri umræða um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Mýrdalshrepps.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða breytingu sem gerir ráð fyrir nafnabreytingu Skipulags- og umhverfisráðs og fækkun aðal- og varamanna í fjallskilanefnd.