Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Afgreiðslu málsins var frestað á 9. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa vegna vinnu við deiliskipulag svæðisins. Þeirri vinnu er nú lokið og búið að auglýsa deiliskipulagið í B-deild Stjórnartíðinda. Ívar Páll Bjartmarsson leggur fram bókun við afgreiðslu þessa liðs, sem er sett fram í umsögn, dagsettri 20.04.2026. Í niðurlagi umsagnar er þess óskað að ekki verði tekin jákvæð ákvörðun um samþykkt fyrr en framangreindum athugasemdum, sem snerta brunavarnir mannvirkisins, verði sinnt með fullnægjandi hætti.
Byggingarfulltrúi leggur til að haldinn verði fundur með hönnuðum mannvirkis, fulltrúa slökkviliðs Mýrdalshrepps og byggingarfulltrúa þar sem að fjallað verður um brunavarnir mannvirkisins eins fljótt og unnt er.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Í inngangi málsins er sagt að um sé að ræða Austurveg 20. Það er rangt en um er að ræða framkvæmd á Austurvegi 16. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta. - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.Bókun fundarSveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.Bókun fundarSveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði.Bókun fundarOddviti vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta. - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína. - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta. - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að forkynna fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið. AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið mælist til þess að útbúin verði gögn sem sýna skuggavarp af verslunar- og þjónustu og miðsvæði. Jafnframt verði skoðuð útfærsla á grenndarstöð fyrir íbúðargötur. AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
AHÓ og SSÞ sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið leggur áherslu á að svæði fyrir framan Brydebúð verði skipulagt þannig að nægur fjöldi bílastæða sé fyrir starfsemi Kötluseturs og veitingastaðar. Jafnframt verði ákvæði um gólfkóta tekin til frekari skoðunar m.t.t. til heildaryfirbragðs byggðar. Skipulagsfulltrúa er falið að kanna afstöðu íbúa á Sunnubraut til útfærslu á hljóðvörnum, hvort gerð verði mön eða girðing og trjágróður.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Ráðið gerir ekki athugasemd við breytinguna og mælist til að hún verði unnin samhliða óverulegri breytingu skipulags iðnaðarsvæðis sem þegar hefur verið samþykkt.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Ráðið telur að skoða þurfi fleiri staðsetningar og fá ítarlegri upplýsingar um fyrirkomulag m.t.t. tenginga við kerfi bæjarins o.þ.h. Málinu frestað til næsta fundar.
Skipulags- og umhverfisráð - 42Skipulagsfulltrúi vék af fundi við afgreiðslu málsins. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsinguna.Bókun fundarSkipulagsfulltrúi vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 35Ráðið þakkar skólastjóra og nemendum fyrir yfirferðina. Skólastjóra og starfsfólki skólans er þakkað fyrir farsælt samstarf á kjörtímabilinu sem er að renna sitt skeið.
4.Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 36
Fyrri umræða um ársreikning Mýrdalshrepps fyrir árið 2025.
Haraldur Örn Reynisson fulltrúi KPMG mætti á fundinn og kynnti ársreikning 2025. Kolbrún Magga Matthíasdóttir skrifstofustjóri sat jafnframt fundinn undir þessum lið.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.829 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.712 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 334 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 313 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.453 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 2.673 millj. kr.
Veltufé frá rekstri fyrir A og B hluta nam 402 millj. kr. og handbært fé í árslok nam 335 millj. kr.
Skuldahlutfall Mýrdalshrepps var 49% og lækkaði um 13% á milli ára.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi til síðari umræðu.
Lagt fram erindi frá Eyjagöngum vegna hlutafjársöfnunar.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið en sér ekki fært að taka þátt í verkefninu að svo stöddu.
7.Erindi vegna Víkurgils og starfsemi Zipline.
2604007
Lögð fram samningsdrög.
Sveitarstjórn staðfestir samninginn með þeirri breytingu að fært skal inn ákvæði um að framsal réttinda sé háð samþykki sveitarstjórnar. Sveitarstjóra falið að ganga frá undirritun.
8.Umsókn um styrk frá Hestamannafélaginu Sindra
2206014
Lögð fram umsókn frá Hmf Sindra vegna reiðskóla 2026.
Lagt fram erindi frá umsækjanda vegna grenndarkynningar.
DB vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Að teknu tilliti til framkominna athugasemda umsækjanda, gerir sveitarstjórn ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
10.Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
2111015
Lögð fram drög að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs til samþykktar að loknu umsagnarferli.
Sveitarstjórn staðfestir fyrir sitt leyti svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann, sem gerir ráð fyrir 6 m.kr. heimild til kaupa á innanstokksmunum fyrir bókasafn Víkurskóla. Handbært fé lækkar sem því nemur og verður 76,5 m.kr. í árslok.
Sveitarstjóri vill þakka sveitarstjórn, fulltrúum í ráðum og starfsfólki Mýrdalshrepps fyrir gott og farsælt samstarf á kjörtímabilinu sem er að renna sitt skeið. Samstarfið hefur einkennst af virðingu og lausnamiðuðu viðmóti gagnvart þeim verkefnum sem unnið hefur verið af. Sveitarstjóri óskar jafnframt þeim sem veljast til setu í sveitarstjórn á komandi kjörtímabili farsældar í sínum störfum.
Sveitarstjórn þakkar sveitarstjóra fyrir vel unnin störf á kjörtímabilinu og gott samstarf.
Aðrir fulltrúar tóku undir þakkir fyrir gott samstarf.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 334 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 313 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.453 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 2.673 millj. kr.
Veltufé frá rekstri fyrir A og B hluta nam 402 millj. kr. og handbært fé í árslok nam 335 millj. kr.
Skuldahlutfall Mýrdalshrepps var 49% og lækkaði um 13% á milli ára.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi til síðari umræðu.