Sveitarstjórn

691. fundur 22. apríl 2026 kl. 11:00 - 13:39 Skrifstofu Mýrdalshrepps
Nefndarmenn
  • Björn Þór Ólafsson oddviti
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Páll Tómasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 34

2604004F

  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 34 Ráðið þakkar tónskólastjóra fyrir yfirferðina.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 34 Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að málræktar- og læsisáætlun. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 34
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 34 Ráðið leggur til að sveitarfélagið styðji við starfið í ljósi þess að um sjálfboðastarf er að ræða og ekki skipulagt af starfsfólki sveitarfélagsins. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins og samþykkir að veita styrk að upphæð 75 þúsund krónur gegn framvísun kvittana.

2.Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 35

2604003F

3.Skipulags- og umhverfisráð - 41

2604001F

  • Skipulags- og umhverfisráð - 41 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun skipulagstillöguna til yfirferðar áður en tillagan verður auglýst. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 41 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að forkynna fyrirliggjandi tillögu með umræddum breytingum í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 41 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytinguna og felur skipulagsfulltrúa að senda gögnin til Skipulagsstofnunar og ljúka málinu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • 3.4 2502003 DSK Steig
    Skipulags- og umhverfisráð - 41 Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 41 Breytingin telst óveruleg og varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og því ekki er talin þörf að grenndarkynna hana.
    Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um lagfæringu á texta í 2. mgr. 1. gr. í skipulagstillögunni.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 41 Ráðið mælist til þess að drög að framkvæmdaleyfi fyrir vegtenginguna og efnistökuna verði send til kynningar. Ráðið gerir ekki athugasemd við staðsetningu bráðabirgða vegtengingar en telur mikilvægt að útfærsla á millilager fyrir efni taki mið af fokhættu efnisins og sjónrænum áhrifum. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 41 ÓG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Ráðið gerir ekki athugasemdir við stækkun lóðarinnar. Stækkunin krefst breytinga á skipulagi svæðisins og ráðið mælist til þess að lóðarhafi standi straum af kostnaði við þær og gerð nýrrar merkjalýsingar.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins og heimilar að breytingin feli í sér færslu um 3 metra til vesturs.

4.Syndabælið - Umsagnarbeiðni

2603008

Lögð fram beiðni um umsögn frá Sýslumanninum á Suðurlandi vegna umsóknar um veitingaleyfi fyrir Syndabælið, Sunnubraut 18 Fnr. 2188854.
DB vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu veitingaleyfis. Misræmis gætir í gögnum um hvort leyfið skuli ná til útiveitinga. Eigi leyfið að ná til útiveitinga telur sveitarstjórn rétt að grenndarkynna þann þátt rekstrarins og heimilar fyrir sitt leyti að grenndarkynning fari fram.

5.Erindi vegna Víkurgils og starfsemi Zipline.

2604007

Lagt fram erindi frá Katlatrack ehf. og Giljagleði ehf. vegna lóðarleigusamnings.
Sveitarstjórn tekur vel í erindið en teldi eðlilegt að leigutími yrði 10 ár. Sveitarstjórn leggst ekki gegn því að bílastæði verði útfærð í tengslum við starfsemina en telur eðlilegt að það fari í gegnum hefðbundið skipulagsferli á kostnað leigutaka.

6.Nýtt hjúkrunarheimili í Vík

2209039

Lögð fram drög að samkomulagi vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis og heilsugæslu í Vík.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti framlögð drög að samkomulagi og felur sveitarstjóra að ganga frá undirritun.
A-listi bókar svohljóðandi:
Staðsetning nýbyggingar hjúkrunarheimilis og heilsugæslu er umdeild í samfélaginu hér í Vík. Okkur er ljóst að úrbóta er þörf varðandi núverandi hjúkrunarheimili og samþykkjum undirritun samkomulagsins.

7.Smiðjuvegur 8

2604013

Umræður um lóðarleigusamning.
PT vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá lóðarleigusamning um lóðina í samræmi við úthlutun sem fór fram árið 2013 og að afmörkun hennar verði í samræmi við gildandi deiliskipulag. Höfð verði viðbótarákvæði um að starfsemi steypustöðvar verði flutt af lóðinni innan árs á nýjan stað í samráði við sveitarfélagið.

8.Lækkun hámarkshraða við Vík.

2604010

Umfjöllun um lækkun hámarkshraða á þjóðvegi 1 innan þéttbýlismarka Víkur.
Sveitarstjórn leggur til við Lögreglustjórann á Suðurlandi að hámarkshraði á þjóðvegi 1 í austurhluta Víkur verði lækkaður í 50 km/klst, austurfyrir afleggjara að Mósastalli þar sem Golfklúbburinn í Vík og Skoolbeans eru með starfsemi. Sveitarstjórn telur framangreint nauðsynlegt til þess að fyrirbyggja slys og auka umferðaröryggi á svæðinu.

10.Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands

11.Fundargerðir stjórnar SASS

12.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

13.Fundargerðir stjórnar Hulu bs.

14.Fundargerðir stjórnar FSRV

Fundi slitið - kl. 13:39.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir