Sveitarstjórn

690. fundur 19. mars 2026 kl. 09:00 - 11:14 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Þorgerður H. Gísladóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Björn Þór Ólafsson
  • Páll Tómasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skipulags- og umhverfisráð - 40

2603002F

  • Skipulags- og umhverfisráð - 40 Málinu frestað til næsta fundar og skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum vegna misræmis á framfæri við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • 1.2 2502003 DSK Steig
    Skipulags- og umhverfisráð - 40 Málinu frestað til næsta fundar og skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum vegna misræmis á framfæri við málsaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40 Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að setja málið í grenndarkynningu skv. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40 Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna, með þeirri breytingu að heimilt verði að staðsetja eitt smáhýsi fyrir hverja íbúð á lóðum við Strandveg sem háð verði samþykki allra íbúðareigenda á hverri lóð, og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið mælist jafnframt til þess að sveitarfélagið láti útbúa eignaskiptayfirlýsingu fyrir lóðina Strandveg 2-6 þar sem sveitarfélagið á þrjár íbúðir. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna með áorðnum breytingum í samræmi við athugasemdir ráðsins og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40 Ráðið samþykkir uppsetningu skilta í samræmi við innsend gögn fyrir utan LED skjá sem staðsettur er á norðurhlið hússins, í samræmi við skilmála aðalskipulags. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40 Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40
  • Skipulags- og umhverfisráð - 40 Ráðið fellst ekki á uppsetningu skilta skv. umsókninni þar sem þau eru of nálægt þjóðvegi. Ráðið vísar umsækjanda á fyrri umsókn sem samþykkt var í ágúst 2025 og þá skilmála sem tilgreindir eru í aðalskipulagi varðandi LED skjái. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.

2.Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 33

2603001F

  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 33 Ráðið þakkar Katrínu fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti framlagt skóladagatal 2026-2027, með fyrirvara um staðfestingu foreldraráðs, og skólanámsskrá Mánalands. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 33 Ráðið þakkar Elínu fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti skóladagatal Víkurskóla 2026-2027 með fyrirvara um staðfestingu skólaráðs og starfsmannafundar. Ráðið leggur jafnframt til við sveitarstjórn að skoðuð verði kaup á innréttingu fyrir bókasafn Víkurskóla sem geti nýst til framtíðar í tengslum við framtíðarþróun skólahúsnæðisins og haft verði samráð við hönnuði. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins og felur skólastjórnendum að funda með hönnuðum nýs skólahúsnæðis til að skoða frekari útfærslu á bókasafni sem getur nýst til framtíðar.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 33 Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti samninginn.
    Bókun fundar Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu ráðsins.
    Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.

3.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9

2602005F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Samþykkt er að veita leyfi fyrir allt að 60 gesti í gistirými, en gerð er athugasemd við að veita leyfi fyrir allt að 80 gesti í veitingarými þar sem að ekki hefur verið sýnt fram á nægjanlega fjölda bílastæða við mannvirkið.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Ekki er gerð athugasemd við veitingu rekstrarleyfis að Sólheimahjáleigu fyrir 44 í gistingu og 60 í veitingarými.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
    - Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs liggi fyrir sbr. gr. 15.2.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Kvittun fyrir staðfestingu á skilum lífsferilsgreiningar (reiknað kolefnisspor byggingar).
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á einstökum verkþáttum.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
    Bókun fundar Skipulags- og umhverfisráð mæltist til þess að byggingarfulltrúi fylgdi eftir bókunum ráðsins og sveitarfélagsins sem lúta að því að slökkvivatn verði tryggt fyrir húsið áður en framkvæmdir hefjast.
    Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 9 Afgreiðslu málsis er frestað þar sem að vinnu við deiliskipulag svæðisins er ekki lokið.

4.Sólheimahjáleiga Gistihús- umsagnarbeiðni

2602005

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Suðurlandi.
Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu ráðsins.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.

5.Erindi frá sóknarnefnd Skeiðflatarkirkju

2603002

Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Skeiðflatarkirkju.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja sóknarnefnd Skeiðflatarkirkju sem nemur kostnaði við kaup á hliði skv. umsókninni, alls 285.200 kr. Sveitarstjórn vill taka fram að eðlilegt er að við beiðnir um styrki sé umsókn lögð fram ásamt kostnaðaráætlun, áður en framkvæmdir hefjast.

6.Umsókn um styrk

2603003

Lögð fram umsókn um styrk frá Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur vegna verkefnis um stríðsárin í Mýrdalnum.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið en leggur til við umsækjanda að skoða umsókn um styrk í aðra sjóði, s.s. uppbyggingarsjóð Suðurlands sem er á vegum sveitarfélaganna og veitir styrki í menningarverkefni.

7.Skipan í nefndir og ráð

2206015

Tekin fyrir skipan aðalmanns í kjörstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir að Jóhannes Marteinn Jóhannesson taki sæti aðalmanns í kjörstjórn.

8.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Víkurbraut 5 - Flokkur 1

2511004

Tekin fyrir umsókn um byggingarleyfi að Víkurbraut 5 að undangenginni grenndarkynningu. Málið var kynnt næstu nágrönnum og bárust engan athugasemdir þar til fresturinn rann út.
Sveitarstjórn heimilar fyrir sitt leyti útgáfu byggingarleyfis.

9.Austurvegur 17

1603005

Lagt fram kauptilboð í Austurveg 17.
ÞHG vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir tilboð Súpufélagsins að upphæð 75.000.000 kr. sem var hæsta boð.
Samþykkt PT og DB.
AHÓ og SSÞ sitja hjá.

10.Fundargerðir stjórnar FSRV

2404005

Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

12.Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands

Fundi slitið - kl. 11:14.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir