Sveitarstjórn

689. fundur 19. febrúar 2026 kl. 09:00 - 10:30 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Salóme Svandís Þórhildardóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Jón Ómar Finnsson
  • Þorgerður H. Gísladóttir Nefndarmaður
    Aðalmaður: Björn Þór Ólafsson
  • Páll Tómasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 33

2602003F

2.Skipulags- og umhverfisráð - 39

2602002F

  • Skipulags- og umhverfisráð - 39 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • 2.2 2510015 ASK BR Giljur
    Skipulags- og umhverfisráð - 39 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að forkynna fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 39 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að forkynna fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu að skilmálar fyrir I9 verði á þann hátt að einungis verði heimilað að setja upp færanleg mannvirki, og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið.
    Ráðið leggur til að óskað verði eftir fundi með sveitarstjórn og fulltrúum Vegagerðarinnar til að ræða um skipulag og sjóvarnir á svæðinu.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins með þeim breytingum að reitur M7 að Sléttuvegi 10 verði breytt í íbúðarsvæði og að færð verði ákvæði um að lóðir á svæði I9 verði girtar af og gætt að ásýnd svæðis.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 39 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu. Teknar eru til greina ábendingar slökkviliðs og vísað í yfirstandandi vinnu með EFLU verkfræðistofu um úrbætur á slökkvivatni í Vík. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • 2.5 2511005 DSK BR Bakkar
    Skipulags- og umhverfisráð - 39 Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.

3.Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 32

2602001F

  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 32 Ráðið þakkar leiksskólastjóra fyrir yfirferðina.
    Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti viðbótarstarfsdag vegna samstarfsverkefnis með MEMM. Ráðið frestar afgreiðslu skólanámskrár og skóladagatals þar til skóladagatal fyrir Víkurskóla liggur fyrir.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 32 Ráðið þakkar skólastjóra og Þuríði fyrir yfirferðina. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti viðbótarstarfsdag fyrir skólaárið 2026-2027 vegna náms- og kynnisferðar starfsfólks. Ráðið felur skólastjóra í samráði við forstöðumanns áhaldahúss að ráðast í úrbætur á skólalóð og við bílastæði Víkurskóla. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
  • Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 32 Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Lagt er til að óskað verði eftir umsögn ÍSÍ og UMFÍ auk aðildarfélaga USVS um samninginn áður en hann verður lagður fyrir næsta fund ráðsins. Jafnframt leggur ráðið til að gildistími samningsins og uppsagnarákvæði verði endurskoðuð, form samningsins endurskoðað til einföldunar, auk annarra útfærsluatriða í samræmi við umræður fundarins. Formanni ráðsins falið að fylgja málinu eftir.
    Bókun fundar Sveitarstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.

4.Skeiðflöt - rekstrarleyfi

2511010

Lögð fram beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis að Skeiðflöt fnr. F2188421.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Sveitarstjórn áréttar mikilvægi þess að aflað sé leyfa fyrir allri leyfisskyldri starfsemi sem fram fer hjá rekstraraðila.

5.Umsókn um styrk frá Hestamannafélaginu Sindra

2206014

Lögð fram umsókn um styrk.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja HMF Sindra um 1 milljón til reiðvegagerðar í samræmi við umsóknina.

6.Samgönguáætlun 2026-2040

2602004

Umsögn við samgönguáætlun.
Sveitarstjórn samþykkir umsögnina og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.

7.Fundargerð stjórnar Kötluseturs

2108012

Sveitarstjórn samþykkir að sveitarfélagið annist viðhaldsframkvæmdir eins og stjórn Kötluseturs óskaði eftir.

9.Fundargerðir stjórnar Bergirsans

2302009

Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2302011

Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir stjórnar SASS

2311016

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir