Skipulags- og umhverfisráð - 38Ráðið samþykkir tillöguna með þeirri breytingu að afmörkun vesturhluta nái yfir íbúðarhús frá Víkurbraut 24-14.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 38Ráðið þakkar slökkviliðsstjóra fyrir yfirferðina og leggur til að þegar verði hafin skoðun á mögulegum lausnum til að unnt verði að tryggja nægilegt slökkvivatn í öllum hverfum bæjarins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 38Ráðið fellst ekki á uppsetningu skiltisins vegna umfangs og áhrifa á ásýnd umhverfis og mælist til þess að það verði fjarlægt. Vilji umsækjandi setja upp nýtt skilti þá mælist ráðið til þess að send verði ný umsókn með hönnun sem samræmist betur ásýnd hverfisins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 31Ráðið þakkar fyrir yfirferðina og leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samninginn og felur sveitarstjóra að ganga frá undirritun.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 31Ráðið leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samninginn og felur sveitarstjóra að ganga frá undirritun.
3.Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 32
Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 32Ráðið felur formanni að vera í sambandi við verkefnisstjóra til að kanna þátttöku í verkefninu. - The council tasks the chairman with contacting the project manager regarding participation in the project.
4.Umsókn um styrk frá Hestamannafélaginu Sindra
2206014
Lögð fram styrkbeiðni frá hestamannafélaginu Sindra.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og felur sveitarstjóra að funda um málið með stjórn hestamannafélagsins til að afla frekari upplýsinga.