Sveitarstjórn

687. fundur 18. desember 2025 kl. 16:00 - 17:40 Leikskálum
Nefndarmenn
  • Björn Þór Ólafsson oddviti
  • Anna Huld Óskarsdóttir Nefndarmaður
  • Drífa Bjarnadóttir Nefndarmaður
  • Jón Ómar Finnsson Nefndarmaður
  • Páll Tómasson Nefndarmaður
Starfsmenn
  • George Frumuselu Skipulagsfulltrúi
  • Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skipulags- og umhverfisráð - 37

2512002F

  • Skipulags- og umhverfisráð - 37 Skipulags-og umhverfisráðs samþykkir fyrirliggjandi tillögu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga. Skipulagfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun skipulagstillöguna til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga, áður en tillagan verður auglýst. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • 1.2 2510015 ASK BR Giljur
    Skipulags- og umhverfisráð - 37 Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • 1.3 2512004 DSK BR Túnahverfi
    Skipulags- og umhverfisráð - 37 ÓG og GSG véku af fundi við afgreiðslu málsins.
    Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að unnin verði breyting á deiliskipulaginu í samræmi við umsóknina.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • 1.4 2505012 Ný slökkvistöð
    Skipulags- og umhverfisráð - 37 Ráðið gerir ekki athugasemd við niðurstöðu starfshópsins og leggur til við sveitarstjórn að nauðsynleg rannsóknar- og skipulagsvinna verði sett af stað. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 37 Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti afmörkun lóðanna en leggur til að höfð verði kvöð um sameiginlega akstursleið á milli lóðanna Austurvegar 18a, 18b og 16. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 37

2.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7

2512001F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Viðkomandi iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Afgreiðslu málsins var frestað á 6. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Ráðið gerði ekki athugasemd við málið. Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu ráðsins.
    Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður veitt þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Búið er að bregðast við athugasemdum eftir yfirferð aðaluppdrátta.
    - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína.
    - Viðkomandi iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Bókun fundar Skipulags- og umhverfisráðs mæltist til þess að málið yrði sett í grenndarkynningu og fól skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
    Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Bókun fundar Skipulags- og umhverfisráð mæltist til þess að umsækjandi skilaði inn afstöðumynd af lóð sem sýnir hvort að ákvæðum um fjölda bílastæða m.v. gesti séu uppfyllt.
    Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Ekki er gerð athugasemd við veitingu rekstrarleyfis á Skeiðflöt.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Bókun fundar Skipulags- og umhverfisráð gerði ekki athugasemdir við útlit hússins.
    Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7 Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisráði. Bókun fundar Skipulags- og umhverfisráð gerði ekki athugasemd við að veitt yrði stöðuleyfi til árs.
    Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.

3.Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 31

2512003F

4.Fjallskilanefnd - 8

2511007F

  • 4.1 2508007 Fjallskil 2025
    Fjallskilanefnd - 8 Teknir saman tímar í smölunum haustsins og akstur í smalanir. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir samhljóða fjallskil 2025.
  • 4.2 2308025 Önnur mál
    Fjallskilanefnd - 8 Fjallskilanefnd vill áréttar að mikilvægt er að laga girðingar umhverfis þorpið í Vík, áður en fé verður slept út næsta vor.

5.Sunnubraut 12

1603007

Lagt fram kauptilboð í Sunnubraut 12.
JÓF vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tilboðið og felur sveitarstjóra að ganga frá sölu hússins.

6.Fjárhagsáætlun 2026

2511007

Fjárhagsáætlun 2026-2029 tekin til síðari umræðu.
Heildartekjur ársins 2026 eru áætlaðar 1729,8 m.kr. og heildargjöld 1.456,2 m.kr. Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta eftir afskriftir og fjármagnsgjöld er jákvæð um 135,3 m.kr. Handbært fé í árslok eru áætlaðar 82,5 m.kr.

Áætlunin gerir ráð fyrir fjárfestingu að upphæð 599,6 m.kr. Framkvæmdaáætlun fylgir með greinargerð fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun 2026-2029.

7.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurvegur 8 - Flokkur 2

2503003

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að fengnu samþykki nágranna fyrir breytingum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrir sitt leyfi útgáfu byggingarleyfis.

8.Fundargerðir stjórnar Bergirsans

2302009

Lagðar fram fundargerðir til kynningar auk reglna Bergrisans bs. um notendasamninga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti reglur Bergrisans bs. um notendasamninga.

9.Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands

10.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

11.Fundargerðir stjórnar SASS

Fundi slitið - kl. 17:40.

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir

>Sjá eldri fundargerðir