2.Umsagnarbeiðni - Smásala áfengis á framleiðslustað
2511011
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Suðurlandi.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Starfsemi er í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála. Afgreiðslutími og staðsetning er innan marka reglna og skipulagsskilmála sveitarfélagsins. Starfsemi er í samræmi við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir. Lokaúttekt hefur farið fram og kröfum um brunavarnir er fullnægt.