Sveitarstjórn Mýrdalshrepps vottar fjölskyldu og öðrum ástvinum Hörpu Elínar Haraldsdóttur innilegar samúðarkveðjur vegna andláts hennar. Framlag Hörpu til samfélagsmála í Mýrdalshreppi var ómetanlegt og vakti athygli langt út fyrir sveitarfélagið. Sveitarstjórn og sveitarstjóri vilja færa henni hjartans þakkir fyrir gott og árangursríkt samstarf og samfylgd. Minningin um Hörpu lifir áfram í samfélaginu.
Lagt var til að málum 2510006 - Álagning gjalda 2026 og 2311015 Austurvegur 18 auk fundargerð 30. fundar Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráðs yrði bætt við dagskrá fundarins.
Samþykkt samhljóða.
Skipulags- og umhverfisráð - 36Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillöguna með þeirri breytingu að skilmálar fyrir M8 verði "Gert er ráð fyrir skrifstofum, léttri veitingastarfsemi (s.s. kaffihús eða bakarí), dagvöruverslun og íbúðum. Hámarks byggingarmagn er 2300 m2.". Skipulagsfulltrúa falið að senda gögnin til Skipulagsstofnunar og ljúka málinu.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 36AHÓ vék af fundi við afgreiðslu málsins. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.Bókun fundarAHÓ vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 36Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 36Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að unnin verði breyting á deiliskipulaginu í samræmi við umsóknina en mælist til að fært verði inn ákvæði um að útlit verði háð samþykki ráðsins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 36Ráðið heimilar fyrir sitt leyti að sett verði upp girðing á lóðarmörkum.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 36Ráðið staðfestir fyrir sitt leyti afmörkun og nafnabreytingu á lóðinni í samræmi við framlagða merkjalýsingu en mælist til þess að aðkoma að lóðinni verði skilgreind á deiliskipulagi sem er í vinnslu fyrir Giljur.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu ráðsins.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu Skipulags- og umhverfisráðs og gerir ekki athugasemdir við útgáfu byggingarleyfis á grundvelli framlagðra uppdrátta.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6Afgreiðslu málsins er frestað og vísað til umjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.Bókun fundarSveitarstjórn hafnar útgáfu byggingarleyfis sem gerir ráð fyrir metanfleti á lóðinni Víkurbraut 5. Vísað er til skilmála aðalskipulags um að unnið verði að því að tryggja öryggi vegfarenda innan þéttbýlis á gönguleiðum. Uppsetning metanfletis svo nærri íbúðarbyggð og við göngustíg innan þéttbýlis samræmist ekki þeim ákvæðum.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6Málinu er frestað og vísað til umsagnar í skipulags- og umhverfisnefnd.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir bókun Skipulags- og umhverfisráðs: Í ljósi breyttrar starfsemi við Víkurbraut 26 þar sem umfangsmikil fólksflutningastarfsemi er rekin samhliða gistiheimilinu þá frestar ráðið afgreiðslu málsins og mælist til þess að umsækjandi skili inn greinargerð um það hvernig tryggja megi að ákvæðum um fjölda bílastæða við gististaði verði fylgt og umferðaröryggi á svæðinu tryggt. Skipulagsfulltrúa falið að funda með umsækjendum.
JÓF sat hjá við afgreiðslu málsins.
Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 30Ráðið þakkar leikskólastjóra fyrir kynninguna. Ráðið leggur til við stjórnendur Mánalands og Víkurskóla að fundir með foreldrum barna í elsta árgangi leikskóla með Víkurskóla verði hafðir fyrr heldur en verið hefur, t.d. í febrúar. - The council thanks the pre-school director for the presentation. The council recommends to the directors of Mánaland and Víkurskóli that meetings with parents of children in the oldest grade of kindergarten with Víkurskóli be held earlier than has been the case, for example in February.
Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 30Ráðið þakkar Einari fyrir kynninguna og samþykkir að taka þátt í frekara samstarfi við háskólann í tengslum við skipulag vinnustofa um þróun aukins námsframboðs. - The council thanks Einar for the presentation and agrees to participate in further collaboration with the university in connection with organizing workshops on the development of increased course offerings.
Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 30Ráðið samþykkir að vinnustofur í lýðræðisþátttökuverkefninu verði haldnar í janúar. - The council agrees that workshops for the project be scheduled in January.
Lögð fram andmæli vegna fyrirhugaðrar innköllunar á hluta lóðarinnar að Austurvegi 18.
Í framhaldi af fundi sveitarstjórnar þann 16. október sl. þar sem fjallað var um innköllun hluta lóðarinnar á Austurvegi 18 var talið eðlilegt að lóðarhafa yrði gefinn kostur á að neyta andmælaréttar vegna fyrirhugaðrar innköllunar. Í því ljósi er málið tekið fyrir aftur.
Að fengnum andmælum lóðarhafa samþykkir sveitarstjórn samhljóða innköllun þess hluta lóðarinnar Austurvegar 18 landnr. 163285 í Vík sem ekki hefur verið byggt á og nemur 3.428 m2 stækkun sem sveitarfélagið samþykkti með nýjum lóðarleigusamning dags. 10.1.2020 og felldi úr gildi eldri samning frá 1974. Þrátt fyrir andmæli lóðarhafa hefur sveitarfélagið veitt mikið svigrúm til þess að hefja framkvæmdir og minnir á að í bókun frá 670. fundi þann 14.11.2024 lagði sveitarstjórn ríka áherslu á að tímaáætlanir lóðarhafa gengju eftir, að öðrum kosti yrði framangreind afgreiðsla endurskoðuð. Tímaáætlanir gengu ekki eftir og lóðarhafa var fullkunnugt um framangreint.
Sveitarstjórn lítur til þess að þegar lóðum er úthlutað þá sé það til uppbyggingar í samræmi við skilmála lóðarleigusamninga, úthlutunarreglna og skipulags. Hagsmunir sveitarfélagsins lúta að því að innviðir sveitarfélagsins séu nýttir og í þessu tilviki að byggð verði upp verslun og þjónusta til hagsbóta fyrir samfélagið. Í ljósi þess að lóðarhafi hefur ekki framkvæmt þrátt fyrir rúmt svigrúm þá telur sveitarstjórn nauðsynlegt að taka þann hluta lóðarinnar til baka og hefja undirbúning að breytingu á skipulagi þannig að hægt sé að úthluta nýrri lóð til uppbyggingar. Skortur hefur verið á verslunar- og þjónustulóðum og mikil eftirspurn. Við þær aðstæður, eins og lóðarhafa hefur verið margoft bent á, þá er óásættanlegt að setið sé á eftirsóknarverðu uppbyggingarlandi án þess að framkvæma.
Þrátt fyrir innköllun hluta lóðarinnar þá situr eftir að lóðarhafi er með 4.400 m2 lóð sem býður upp á mörg tækifæri í uppbyggingu sem hvatt er til. Sveitarstjórn óskar í framhaldinu eftir góðu samstarfi við lóðarhafa við breytingu á deiliskipulagi svæðisins.
Sveitarstjóra falið að svara erindi lóðarhafa í samráði við lögmann.
9.Umsókn um styrk
2510009
Lögð fram styrkbeiðni frá Rótarýklúbb Rangæinga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um 180.000 kr.
Lagt var til að málum 2510006 - Álagning gjalda 2026 og 2311015 Austurvegur 18 auk fundargerð 30. fundar Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráðs yrði bætt við dagskrá fundarins.
Samþykkt samhljóða.