Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 28Ráðið þakkar Magneu fyrir kynninguna og felur verkefnisstjóra íslensku og inngildingar frekari viðræður um samstarf - The Council thanks Magnea for the presentation and tasks the Icelandic and inclusion project manager with further discussions on cooperation.
Enskumælandi ráð - English Speaking Council - 28Ráðið samþykkir að taka þátt í samstarfi um alþjóðlegt matarsmakk í tengslum við Regnbogahátíðina 2025. Ráðið mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði ríkisstjórnarinnar á framlögum til íslenskukennslu. Aldrei hefur verið meiri þörf á framlögum í málaflokkinn og andstætt heildarhagsmunum samfélagsins að fjárfesta ekki í íslenskri tungu. Ráðið felur verkefnisstjóra að undirbúa drög að umsögn við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. - The Council agrees to participate in a collaboration on an international food tasting in connection with the 2025 Rainbow Festival. The Council strongly objects to the government's planned cuts in funding for Icelandic language education. There has never been a greater need for funding in this area and it is contrary to the overall interests of society not to invest in the Icelandic language. The Council tasks the project manager with preparing a draft for a review on the government's budget proposal.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 29Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að fylgja verkefninu eftir í samráði við skipulagsfulltrúa og skipulags- og umhverfisráð.Bókun fundarSveitarstjórn vísar málinu til frekari umfjöllunar í Skipulags- og umhverfisráði.
Fjölskyldu-, frístunda- og menningarráð - 29Ráðið leggur til að skipað verði hönnunarteymi fyrir verkefnið. Ráðið tilnefnir formann og varaformann ráðsins í hönnunarteymi og leggur til að skipulags- og umhverfisráð tilnefni tvo fulltrúa auk þess sem sveitarstjóri og skipulagsfulltrúi verði í teyminu. Ráðið leggur einnig til að skólastjórnendur og íþrótta- og tómstundafulltrúi taki virkan þátt í starfi hönnunarteymisins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 34Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps fyrir Norður- og Suður Foss og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 34Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að ljúka málinu.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 34Ráðið tekur ekki afstöðu til málsins og mælist til þess að það verði rætt á vettvangi eigenda Ytri-Skóga áður en að það verður unnið frekar.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins með vísan í samkomulag um fyrirsvar Rangárþings eystra sem undirritað var árið 2020 og kvað á um að gera þyrfti viðauka við samkomulagið vegna breytinga á skipulagi svæðisins.
Skipulags- og umhverfisráð - 34Ráðið tekur ekki afstöðu til málsins og mælist til þess að það verði rætt á vettvangi eigenda Ytri-Skóga áður en að það verður unnið frekar.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins með vísan í samkomulag um fyrirsvar Rangárþings eystra sem undirritað var árið 2020 og kvað á um að gera þyrfti viðauka við samkomulagið vegna breytinga á skipulagi svæðisins.
Skipulags- og umhverfisráð - 34Skipulags-og umhverfisráðs samþykkir breytinguna og felur skipulagsfulltrúa að senda gögnin til Skipulagsstofnunar og ljúka málinu.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 34SV vék af fundi við afgreiðslu málsins. Ráðið mælist til og heimilar fyrir sitt leyti að unnin verði aðalskipulagsbreyting vegna þess hluta sem skilgreina skal sem íbúðarsvæði. Skipulags-og umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða aðalskipulagsbreytingartillögu.Bókun fundarSveitarstjórn heimilar fyrir sitt leyti að unnin verði veruleg breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepp fyrir Steig þar sem skilgreind verður íbúðarbyggð og byggingarmagn á reit VÞ26 aukið. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verði unnin breyting á deiliskipulaginu í samræmi við framangreint.
Skipulags- og umhverfisráð - 34Ráðið tilnefnir Óðinn Gíslason og Önnu Huld Óskarsdóttur sem fulltrúa ráðsins í teymið.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
4.Rekstur Hjallatúns
2102028
Umfjöllun um rekstur Hjallatúns.
Guðrún Berglind Jóhannesdóttir hjúkrunarforstjóri og Kolbrún Magga Matthíasdóttir skrifstofustjóri Mýrdalshrepps sátu fundinn undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir sem viðauka III við fjárhagsáætlun 2025 að veita rekstrarstyrk að upphæð 8.000.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir að frá og með áramótum verði fyrirkomulagi um skólamáltíðir breytt í þá veru að Hjallatún sendi sveitarfélaginu reikninga fyrir skólamáltíðir og máltíðir eldri borgara. Skrifstofustjóra er falinn undirbúningur í samráði við hjúkrunarforstjóra.
5.Heimsókn frá Byggðastofnun
2508012
Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar og Sigríður Elín Þórðardóttir forstöðumaður þróunarsviðs mættu á fundinn með kynningu.
Sveitarstjórn þakkar fyrir kynninguna.
6.Erindi vegna Smiðjuvegar 22A
2509009
Lagt fram erindi frá Óðni Gíslasyni og Þorgerði H. Gísladóttur.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra frekari viðræður við lóðarhafa Smiðjuvegar 22A vegna málsins.
7.Erindi frá Stígamótum
2509001
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárframlagi til starfsemi Stígamóta árið 2026.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við beiðni um fjárframlag þar sem sveitarfélagið styrkir og hyggst áfram styrkja Sigurhæðir.
8.Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
2509002
Lögð fram umsagnarbeiðni vegna umsóknar Samherja félags eldri borgara í Mýrdal um tækifærisleyfi.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
9.Trúnaðarmál
2504007
Afgreiðsla færð í trúnaðarmálabók.
10.Smiðjuvegur 20B - umsókn um lóð
2505007
Oddviti vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Lagðar fram umsóknir sem bárust vegna lóðarinnar Smiðjuvegur 20B.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að stýra útdrætti um lóðina.
11.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sveitarstjórn samþykkir að frá og með áramótum verði fyrirkomulagi um skólamáltíðir breytt í þá veru að Hjallatún sendi sveitarfélaginu reikninga fyrir skólamáltíðir og máltíðir eldri borgara. Skrifstofustjóra er falinn undirbúningur í samráði við hjúkrunarforstjóra.