Skipulags- og umhverfisráð - 33Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að eigendum fasteigna við Austurveg H1, H2 og H3 fái skika til afnota austan Víkurkletts þar sem heimilt verði að koma upp tímabundinni aðstöðu í stað þeirrar sem er á Austurvegi. Gerður verði tímabundinn samningur til þriggja ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og sett ákvæði um að sveitarfélagið beri ekki kostnað vegna samningsins. Skipulagsfulltrúa og sveitarstjóra falið að leggja afstöðumynd og drög að samningi fyrir sveitarstjórn.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins. Sveitarstjórn mælist til þess að skipulags- og umhverfisráð taki umræðu um framtíðarstefnu sveitarfélagsins tengda búpeningi og dýrahaldi innan þéttbýlismarka Víkur og skoði hvort marka þurfi skýrari stefnu í aðalskipulagi.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Skipulags- og umhverfisráð samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Verið er að skipta skipulagssvæðinu upp í þrjú minni skipulagssvæði og með gildistöku nýrra deiliskipulagsáætlana. Breytingin telst það óveruleg að ekki er talin þörf á að grenndarkynna hana. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan hljóti málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Breyting hefur verið gerð á deiliskipulagi austurhluta sjá lið 4. að öðru leyti eru skipulagsgögn óbreytt. Skipulags- og umhverfisráð leggur til að sveitarstjórn taki athugasemdir til umræðu og samþykki að senda gögn til Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu framkvæmdaleyfis verði frestað þar sem skógræktin er ekki í samræmi við gildandi aðalskiplag en til þess að heimila framkvæmdina þá þurfa framkvæmdaraðilar að óska eftir breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 þar sem skilgreina þarf skógræktina sem skógræktar- og landgræðslusvæði. Ráðið bendir á að á umræddu landi er þjóðleið sem áfram skal vera opin. Fyrirhugað framkvæmdasvæði liggur nærri mörkum annarra jarða og því er mikilvægt að merkjalýsing liggi fyrir.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Ráðið fellst ekki á uppsetningu girðingarinnar að svo stöddu. Fyrirhuguð er gerð gangstéttar á mörkum lóðarinnar og þökulögn á svæðinu í kring. Berist umsókn aftur um uppsetningu girðingar mælist ráðið til þess að með fylgi ásýndarmyndir til að meta megi áhrif á umhverfið í kring. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að sá hluti sem þegar hefur verið afgirtur fái að standa vegna öryggis vegfarenda við þjóðveg 1 að því gefnu að tryggt verði svigrúm til framkvæmda við nýja gangstétt í samræmi við skipulag, en bendir einnig á að afla þarf samþykkis Vegagerðarinnar. Lóðarhafa er bent á að hafa samráð við skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa um framhaldið. AHÓ sat hjá við afgreiðslu málsins.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins en felur ráðinu að taka til skoðunar breytingu á deiliskipulagi svæðisins og greina betur áætlaða umferð gangandi vegfarenda af Smiðjuvegi yfir á Austurveg og niður í Víkurfjöru.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Ráðið leggur til að heimiluð verði uppsetning á hleðslugám í samræmi við hugmynd Rarik norðvestan við aðveitustöðina.Bókun fundarSveitarstjórn heimilar að settur verði hleðslugámur samsíða norðurhlið aðveituhússins.
Sveitarstjórn krefst þess að RARIK ráðist þegar í úrbætur á mikilli hljóðmengun sem hlýst af keyrslu varaafls í bænum sem veldur miklu ónæði fyrir íbúa og atvinnustarfsemi.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra jafnframt að óska eftir fundi fulltrúa sveitarstjórnar með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til þess að knýja á um varanlegar úrbætur í raforkumálum sveitarfélagsins.
Skipulags- og umhverfisráð - 33Skipulags- og umhverfisráð heimilar fyrir sitt leyti að veitt verði stöðuleyfi skv. umsókninni.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir afgreiðslu ráðsins.
Fjallskilanefnd - 7Fjallskilanefnd vill minn á að í fundargerð frá 5.12.2024 þar sem segir orðrétt “Fjallskilanefnd vill árétta við hreppsnefnd, að gera þarf við girðingar kring um þorpið áður enn fé fer út á vorin. Smölun innan þorpsins er ekki inni í fjallskilum.? Vegna þess að girðingarviðhaldi var ekki sinnt í vor, er töluvert af fé innan girðingar. Fjallskilanefnd fer fram á að sveitarfélagið greiði eftirleitartíma fyrir smölun á þessu fé.
Karli Pálmasyni var falið að laga veg inn á HöfðabrekkuafréttBókun fundarSveitarstjórn samþykkir að greitt verði fyrir smölun fjár innan þéttbýlismarka Víkur.
3.Víkurbraut 26 - umsangarbeiðni
2505014
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Suðurlandi vegna umsóknar um gistileyfi fyrir Hótel Drangshlíð ehf. að Víkurbraut 26 F2188824.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs, skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa og að gestafjöldi verði sá sami og var í fyrra rekstrarleyfi fyrir húsið.
JÓF sat hjá við afgreiðslu málsins.
4.Erindi frá ungmennaráði
2508009
Lagt fram erindi frá ungmennaráði Mýrdalshrepps.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið.
Gerðar voru prófanir vegna myglu sumarið 2025 og ekki fundust merki um myglu. Gert hefur verið við leka á húsinu en áfram verður fylgst vel með ástandi hússins.
Sveitarstjórn tekur undir með ungmennaráði um að marka þurfi stefnu til framtíðar um félagsmiðstöð og skipulag skólasvæðisins og mun það verða tekið inn í vinnu við hönnun Víkurskóla sem vonir standa til um að fari af stað á haustmánuðum 2025.
5.Leigusamningur um Þakgil
2311029
Tekið fyrir að nýju erindi vegna leigusamnings í Þakgili.
JÓF og DB véku af fundi við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir að 6. gr. leigusamningsins verði svohljóðandi: "Ef leigusali nýtir sér heimild 5. gr. til að segja upp leigusamningi þessum eða ákveður að framlengja leigusamninginn ekki að gildistíma loknum, skal Mýrdalshreppur greiða leigutaka sannvirði bygginga."
Í tengslum við breytingar á skipulagi svæðisins þá áskilur sveitarfélagið sér rétt til þess að endurskoða verðákvæði samningsins m.t.t. til aukins byggingarmagns á svæðinu ef fyrirhuguð er frekari uppbygging.
6.Víkurbraut 24A - umsagnarbeiðni v.gistileyfi
2508001
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Suðurlandi vegna umsóknar um gistileyfi fyrir Ourhotels Vík ehf. að Víkurbraut 24A F2188823.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs, skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa.
JÓF sat hjá við afgreiðslu málsins.
7.Smiðjuvegur 20B - umsókn um lóð
2505007
Lagðar eru fram umsóknir frá Birni Þór Ólafssyni og Holly Louise Keyser.
BÞÓ vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Vegna mistbrests við upplýsingagjöf varðandi lausar lóðir til úthlutunar þá samþykkir sveitarstjórn að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Sveitarstjórn felur skipulags- og umhverfisráði jafnframt að taka til skoðunar uppskiptingu lóða í ljósi mikillar eftirspurnar eftir minni iðnaðarlóðum.
8.Kjör oddvita og varaoddvita.
2206007
Lagt var til að Björn Þór Ólafsson verði oddviti og Drífa Bjarnadóttir varaoddviti til þess tíma er ný sveitarstjórn tekur við að loknum sveitarstjórnarkosningum 2026.
Samþykkt samhljóða.
9.Rekstraryfirlit
2404016
Kynnt rekstraryfirlit janúar - júní 2025.
10.Efnistaka á efnistökusvæði Austan við Hafursey (E21) - framkvæmdaleyfi
2506007
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi.
Sveitarstjórn samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við umsóknina. Sveitarfélagið mælist til þess að millilager verði tæmdur jafn óðum og flutningar á efni fara fram og að efni standi ekki þar til lengri tíma.