Sumarvinna á Hjallatúni

Samkvæmt mannauðsstefnu Mýrdalshrepps ber að auglýsa allar fastráðningar hjá Mýrdalshreppi.

Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.

Hjúkrunarheimilið Hjallatún óskar eftir fólki í afleysingar frá og með maí næstkomandi. Um er að ræða störf við umönnun aldraðra og þrif.

Fjölbreytt og skemmtileg störf í vaktavinnu, æskilegt er að umsækjandi hafi góðan grunn í íslensku og áhuga á samskiptum,

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands

Umsóknir sendist á hjallatun@vik.is

Guðrún Berglind Jóhannesdóttir

hjúkrunarforstjóri