Fyrri mynd
Næsta mynd
Ok
Velkomin á vef Mýrdalshrepps. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Opna
Facebook
Instagram
Sjórnsýsl
Stjórnsýsla
Mannlíf
Mannlíf
Þjónusta
Þjónusta
EN
PL
Mýrdalshreppur
Open Menu Close Menu
 
Til baka
EN     PL
Þjónustuver
Opið frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-15:00 alla virka daga
Sími 487 1210

Dagatal

15. desember 2019 - kl. 20:30 - 15. desember 2019 - kl. 22:30

Nat King Cole tónleikar á Súpufélaginu

Staðsetning:

Súpufélagið

https://www.facebook.com/events/2552331438177432/
[English below] *Jazz goðsögnin heiðruð í sönnum desemberanda* Þar sem mamma missir af Nat King Cole tónleikunum í bænum þá var ekkert annað í stöðunni en að flytja þá hingað til Víkur í Súpufélagið! Komið og hlustið á ógleymanlegar dægurlagaperlur og jólalög í huggulegri stemningu á Súpufélaginu, sunnudaginn 15. desember kl. 20:30. Barinn opinn og jólabjór og kokteill á tilboði. Aðgangseyrir er 1500 kr. Í sönnum desemberanda munu Þór Breiðfjörð og félagar heiðra King Cole tríóið og flytja öll helstu ljúflingslög Nat King Cole í gegnum árin en þó með sérstakri áherslu á þær jólaperlur sem urðu ódauðlegar í hans flutningi, t.d. The Christmas Song, O little town of Betlehem og O Holy Night. Eflaust finna áheyrendur sömuleiðis þarna íslenskar jólaperlur í anda Nat King Cole, sem Þór hefur hljóðritað og flutt í gegnum árin, á borð við Gleðileg jól, Ástin mín og Hin fyrstu jól. En að sjálfsögðu munu lög eins og Mona Lisa, When I Fall in Love, Unforgettable, Nature Boy o.fl. hljóma á tónleikunum. Nat King Cole hefði orðið 100 ára þann 17. mars síðastliðinn og því ber að fagna. King Cole tríóið var upphafið að velgengni hans; djassgítar, kontrabassi og svo Nat sjálfur syngjandi við píanóið. Flytjendur: Þór Breiðfjörð – söngur Vignir Þór Stefánsson – píanó Andrés Þór Gunnlaugsson – gítar Jón Rafnsson – kontrabassi ENGLISH: *The jazz legend honored in a true Christmas spirit* Since our mother will miss out on the Nat King Cole concerts in Reykjavik, there was nothing to do but to have them come to us at the Soup Company in Vík! Come and enjoy the unforgettable classics of Nat King Cole and the King Cole trio, in a cozy atmosphere at the Soup Company on Sunday 15th December at 20:30. The bar will be open and we'll have an offer on Christmas beer and Christmas cocktail. Entrance is 1500 kr.
17. desember 2019 - kl. 18:00 - 17. desember 2019 - kl. 19:00

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal - söngstund á aðventu

Staðsetning:

Skeiðflatarkirkja

Þriðjudagskvöldið 17. desember nk. ætla félagar úr Samkór Mýrdælinga að leiða almenna söngstund í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal, undir stjórn Brians R. Haroldssonar organista Fjölmennum til að syngja saman uppáhalds jólasálmana og jólalögin í notalegri samveru í kirkjunni á aðventu. Nánar auglýst síðar. Samkór Mýrdælinga og sóknarprestur
18. desember 2019 - kl. 20:00 - 18. desember 2019 - kl. 22:00

Jólastund

Staðsetning:

Víkurkirkja

https://www.facebook.com/events/2187415101565571/
Við mæðgur ætlum að halda notalega jólastund þar sem við munum flytja okkar uppáhalds jóla- og vetrarljóð. Þar á meðal eru bæði þjóðlög, dægurlög og sálmar. Við verðum í: Víkurkirkju 18.desember, 20:00 Ólafsvallarkirkju 21.desember, 20:00 Kálfholtskirkju 22.desember, 20:00 Gaman væri að sjá ykkur sem flest :) Almennur aðganseyrir er 1500 kr. (1000kr fyrir eldri borgara og frítt fyrir 12.ára og yngri).
22. desember 2019 - kl. 20:00 - 22. desember 2019 - kl. 22:00

JÓLASÖNGVAR Í VÍKURKIRKJU

Staðsetning:

Víkurkirkja

22. desember nk. kl. 20:00 Innlendir og erlendir listamenn flytja fjölbreytta jólatónlist
24. desember 2019 - kl. 18:00 - 24. desember 2019 - kl. 19:00

Messa í Víkurkirkju - Aðfangadagur jóla

Staðsetning:

Víkurkirkja

Aðfangadagur jóla
25. desember 2019 - kl. 13:00 - 25. desember 2019 - kl. 14:00

Messa í Reyniskirkju - Jóladagur

Staðsetning:

Reyniskirkja í Mýrdal

25. desember 2019 - kl. 16:00 - 25. desember 2019 - kl. 17:00

Messa í Eyvindarhólakirkju - Jóladagur

Staðsetning:

Eyvindarhólakirkja undir Eyjafjöllum

26. desember 2019 - kl. 14:00 - 26. desember 2019 - kl. 15:00

Messa í Stóra-Dalskirkju - annar í jólum

Staðsetning:

Stóra-Dalskirkja

29. desember 2019 - kl. 13:00 - 29. desember 2019 - kl. 14:00

Messa í Sólheimakapellu - sunnudagur milli jóla og nýárs

Staðsetning:

Sólheimakapella í Mýrdal

29. desember 2019 - kl. 16:00 - 29. desember 2019 - kl. 17:00

Messa í Ásólfsskálakirkju - sunnudagur milli jóla og nýárs

Staðsetning:

Ásólfsskálakirkja

 
Prenta Prenta