Fyrri mynd
Næsta mynd
Ok
Velkomin á vef Mýrdalshrepps. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Opna
Facebook
Instagram
Sjórnsýsl
Stjórnsýsla
Mannlíf
Mannlíf
Þjónusta
Þjónusta
EN
PL
Mýrdalshreppur
Open Menu Close Menu
 
Til baka
EN     PL
Þjónustuver
Opið frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-15:00 alla virka daga
Sími 487 1210

Fréttir

TEXTASKRIF OG VINNSLA Á EFNI INN Á VEFINN VISITICELAND.COM

STÖRF ÁN STAÐSETNINGAR Á LANDSBYGGÐINNI

Ferðamálastofa leitar að einstaklingum til efnisvinnslu og textaskrifa fyrir vefinn visiticeland.com og miðla tengdum honum.

Ferðamálastofa, Íslandsstofa og atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið hafa með samkomulagi sín á milli ákveðið að vefurinn VisitIceland.com verði helsta upplýsingaveita fyrir ferðamenn á leið til landsins, á meðan dvöl þeirra á landinu stendur og eftir að heim er komið. Er þá m.a. horft til upplýsinga um framboð þjónustu, menningu, sögu, náttúru, fjölbreytileika landsins, aðgengi ferðamannastaða, öryggi og umhverfisvernd, veður og færð á vegum. 

 

Mikilvægt er að í slíkri miðlun upplýsinga sé ítarlegt og vel unnið efni, bæði texti og myndir. Uppfærsla og endurnýjun á efni þarf að vera stöðug til að miðillinn sé lifandi og áreiðanlegur.

Leitað er að einstaklingum með fasta búsetu utan höfuðborgarsvæðisins en að öðru leyti er um störf án staðsetningar að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti haft starfsaðstöðu utan heimilis. Miðað er við að starfshlutfall sé að lágmarki 50%.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Textaskrif um land og þjóð í samræmi við ritstjórnarstefnu VisitIceland.com  
  • Uppfærsla upplýsinga og leiðbeininga á VisitIceland.com  
  • Samstarf við áfangastaðastofur, sveitarfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu um gerð efnis fyrir ferðamenn  
  • Þýðing og staðfærsla efnis og texta fyrir stafræna miðlun

 Hæfniskröfur  

  • Yfirgripsmikil reynsla af textaskrifum fyrir vef (leitarvélabestun) og þekking á sviði ferðaþjónustu, háskólapróf er kostur. 
  • Mjög góð enskukunnátta og reynsla af skrifum á ensku. Þekking á fleiri tungumálum kostur 
  • Góð þekking á landi og þjóð, menningu og staðháttum og sérstöðu Íslands s.s. veðráttu og öryggi? 
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Rík þjónustulund og jákvæðni 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Tölvukunnátta og góð þekking á samfélagsmiðlum og vefmiðlun

Nánari upplýsingar

Umsóknum skal skila á netfangið upplysingar@ferdamalastofa.is fyrir 5. mars nk.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Nánari upplýsingar veitir Inga Rós Antoníusdóttir ingaros@ferdamalastofa.is

 

 

Prenta Prenta