Fyrri mynd
Næsta mynd
Ok
Velkomin á vef Mýrdalshrepps. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Opna
Facebook
Instagram
Sjórnsýsl
Stjórnsýsla
Mannlíf
Mannlíf
Þjónusta
Þjónusta
EN
PL
Mýrdalshreppur
Open Menu Close Menu
 
Til baka
EN     PL
Þjónustuver
Opið frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-15:00 alla virka daga
Sími 487 1210

Fréttir

Álagning fasteignagjalda

Álagningu fasteignagjalda 2021 hefur nú verið lokið. Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2021 verða sem fyrr ekki sendir út á pappír, heldur verða þeir aðgengilegir rafrænt í gegnum island.is „mínar síður“ 

Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Mýrdalshreppi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til og með 1. október alls 9 gjalddagar.

Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Mýrdalshreppi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.

Álagning gjalda fyrir árið 2021

Vinsamlega athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar á pappír til þeirra sem eru fæddir á árinu 1949 eða síðar né þeirra sem hafa afpantað seðla, heldur verður einungis stofnuð krafa í heimabanka með sama hætti og á síðasta ári. Greiðsluseðla er hægt að nálgast undir „rafræn skjöl“ í netbanka. Hægt verður að panta eða afpanta seðla með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vik.is   

 

 

 

Prenta Prenta