Fyrri mynd
Næsta mynd
Ok
Velkomin á vef Mýrdalshrepps. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Opna
Facebook
Instagram
Sjórnsýsl
Stjórnsýsla
Mannlíf
Mannlíf
Þjónusta
Þjónusta
EN
PL
Mýrdalshreppur
Open Menu Close Menu
 
Til baka
EN     PL
Þjónustuver
Opið frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-15:00 alla virka daga
Sími 487 1210

Fréttir

Útivistarsvæði og smávirkjun Syngjandi - Deiliskipulag

Í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér kynnt skipulagslýsing deiliskipulags útivistarsvæðis og smávirkjunar á Syngjandanum í Vík í Mýrdal.

Deiliskipulagið nær yfir útivistarsvæðið sem liggur á milli Austurvegar og Suðurvíkurvegar. Innan svæðisins er að finna gamla vatnsvirkjun og er áætlað að endurvekja hana. Markmið deiliskipulagsins er að efla svæðið sem megin útvistarsvæði og áningarstað í Vík.

Skipulagslýsing þessi liggur frammi hjá skipulags-og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is eða má nálgast DSK útivistarsvæði og smávirkjun Syngjandi - lýsing frá 27. janúar 2021 til og með 10. febrúar 2021.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 10. febrúar 2020.

 

George Frumuselu

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Mýrdalshrepps

 

Prenta Prenta