Drög að SAMÞYKKT
um búfjárhald í Mýrdalshreppi.

1.gr.  Markmið og gildissvið

Samþykkt þessi er sett til að tryggja skipulag, stjórn og eftirlit með búfjárhaldi  í Mýrdalshreppi, koma í veg fyrir ágang á lóðir íbúanna og vernda gróður í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn getur falið landbúnaðarnefnd framkvæmd málaflokksins.


2.gr.  Takmörkun á búfjárhaldi og leyfisveitingar

Búfjárhald (nautgripa, hrossa, svína, sauðfjár, kanínu, geita og alifugla) er óheimilt utan lögbýla í Mýrdalshreppi án leyfis sveitarstjórnar.  Sá sem stunda vill búfjárhald utan lögbýla sbr. 2. gr., skal senda skriflega umsókn til sveitarstjórnar. Í umsókninni skal gera grein fyrir fjölda búfjár, sem halda skal, hvernig geymslu skuli háttað og öðru, sem máli kann að skipta um öryggi þess og vörslu. 

Telji sveitarstjórn að umsækjandi uppfylli þau skilyrði sem krafist er veitir hún leyfi til búfjárhalds. Leyfisveiting búfjárhalds skuldbindur þó ekki Mýrdalshrepp til að sjá búfjáreigendum fyrir beitilandi eða hagagöngu handa búfénu né veita þeim aðra aðstöðu til búfjárhalds.

Leyfi til búfjárhalds er veitt til ákveðins tíma en er uppsegjanlegt með eins árs fyrirvara miðað við 15. júní ár hvert.  Samþykkið er háð gildandi lögum og reglum um búfjárhald eins og þær eru á hverjum tíma og er gefið út á nafn og er ekki framseljanlegt. Sá sem fær leyfi til búfjárhalds samkvæmt samþykkt þessari skal hafa búféð í öruggri vörslu og ber hann að öllu leyti ábyrgð á því.


3.gr.  Skilyrði til búfjárhalds, þar með kröfur um húsakost og annan aðbúnað

Óheimilt er að halda búfé, nema að hafa fyrir það hús sem samræmist reglugerðum um aðbúnað búfjár. Sama gildir um allt umhverfi húsanna.

Leyfishafi ber einn ábyrgð á því að hann hafi beitiland og fóður fyrir búfé sitt og skal hann tryggja góða meðferð þess.

Gangi búfé úti á vetrarbeit skal eigandi eða umráðamaður þess ábyrgjast nægilegt fóður, viðunandi skjól og örugga vörslu.

Byggingar gripahúsa eru einungis leyfðar á ákveðnum svæðum sem skipulögð eru fyrir búfjárhald. Þau gripahús sem fyrir eru í sveitarfélaginu utan bújarða og svæða sem ekki eru ætluð til búfjárhalds samkvæmt aðalskipulagi, skulu fjarlægð þegar sveitarstjórn ákveður slíkt, með eins árs fyrirvara. Óheimilt er að byggja við þau, endurnýja eða endurbyggja, en gæta skal þess að þau líti vel út.

 

4.gr.  Auðkenning og merking búfjár

Búfjáreigendum er skylt að merkja allan fénað skýrri eigendamerkingu hvort sem um er að ræða sauðfé, hross, nautgripi o.s.frv. samkvæmt opinberum reglum um þau efni.

 

 

5.gr.  Varsla búfjár, þar með bann við lausagöngu og ákvæði um beitilönd

Lausaganga búfjár er bönnuð á eftirtöldum svæðum:

·   Innan skógræktar- og landgræðslusvæðis umhverfis þéttbýlið í Vík.  Svæðið afmarkast af austurbrúnum Reynisfjalls að Fremra-Grafarhöfði, þaðan girðingu austur um Lindarhóla og upp í Hrafnatinda.  Frá Hrafnatindum með vestur- og suðurbrúnum Víkurheiðar að Uxafótarlæk og með Uxafótarlæk allt til sjávar.

·   Innan veggirðingar með Hringvegi (1) frá Vík að sýslumörkum á Sólheimasandi.

Mýrdalshreppur sér um uppsetningu og viðhald girðingar umhverfis Vík.  Vegagerðin sér um uppsetningu og viðhald girðingar með Hringvegi vestan Víkur samkvæmt sérstöku samkomulagi Mýrdalshrepps og Vegagerðarinnar frá 10. september 2001.

Komist búfé inn á friðuð svæði þrátt fyrir viðurkennda griphelda vörslu skulu starfsmenn Mýrdalshrepps ábyrgjast handsömun og ráðstöfun þess í samræmi við almenn ákvæði laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl., með síðari breytingum, svo og sérstök ákvæði í viðkomandi fjallskilasamþykkt. Enn fremur geta þeir, sem fyrir ágangi verða, látið handsama ágangsfénað, og skulu þeir tilkynna sveitarstjóra um hann tafarlaust.

Búfjáreigendum er heimilt að reka búfé sitt um friðuð svæði sbr. 1.m.gr. 5. gr. með leyfi Mýrdalshrepps enda sé ávallt tryggt að hæfilegur fjöldi gæslumanna sé til staðar til að tryggja að búfé sleppi ekki úr vörslu eigenda búfjárins.

Þar sem reka þarf búfé yfir veg til beitar með reglubundum hætti, skal veghaldari sjá til þess að tilhýðilegar merkingar séu til staðar vegfarendum til aðvörunar.

Sveitarstjóri heldur skrá yfir lönd í eigu sveitarfélagsins, sem leigð eru til beitar og/eða slægna. Umsóknum um land til beitar eða slægna skal senda til sveitarstjóra sem úthlutar landi samkvæmt tillögu landbúnaðarnefndar.

Einstaklingar og félög búfjáreigenda, sem hafa lönd í eigu sveitarfélagsins á leigu til beitar eða slægna skulu leitast við að viðhalda gróðri landsins og efla hann, meðal annars með árlegri áburðargjöf. Í leigusamningi fyrir beiti- og slægjulönd eru tilgreindar reglur um umgengni um landið.

 

6. gr.  Forðagæsla, skráning búfjáreigenda og fjölda búfjár.

Búfjáreftirlitsmaður Mýrdalshrepps hefur eftirlit með ásetningi búfjár, aðbúnaði, fóðrun og beit.  Búfjáreigandi ber kostnað af sem hlýst af handsömun, fóðrun og hýsingu gripa skv. 9., 15., og 16 gr. laga um búfjárhald nr. 103/2002 skv. sérstakri gjaldskrá er sveitarstjórn semur og staðfest er af ráðherra.

 

7.gr.  Búfjáreftirlit, þar með talin ákvæði um meðferð lausagöngufénaðar og búfjár sem haldið er án leyfis.

Hver sá, er á búfé í hagagöngu innan marka Mýrdalshrepps en hefur ekki fasta búsetu þar sjálfur, skal hafa umsjónarmann með búfé sínu sem sveitarstjórn samþykkir og skal hann hafa fasta búsetu í Mýrdalshreppi.

Búfjáreigandi skal bera allan kostnað af ráðstöfunum sem sveitarstjórn getur þurft að grípa til ef afskipti þarf að hafa af búfárhaldinu vegna vanfóðrunar og/eða hirðuleysis eiganda/umsjónarmanns.

 

 

8.gr.  Leyfisgjaldtaka  þar með innheimta kostnaðar sveitarfélagsins af búfjárhaldi.

Allar lögskipaðar læknismeðferðir á búfénaði, svo sem garnaveikibólusetning, sauðfjárböðun og annað sem upp gæti komið, skulu framkvæmdar á ábyrgð sveitarstjórnar en á kostnað búfjáreiganda.

Um fjallskil af búfé og landi í Mýrdalshreppi fer eftir lögum nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl., með síðari breytingum, svo og ákvæðum í fjallskilasamþykkt fyrir Vestur-Skaftafellssýslu nr. 174/1992 og nr. 534/1997.

 

9.gr.  Viðurlög við brotum gegn samþykktinni

Brot gegn samþykkt þessari varða sektum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála skv. 18. gr laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002, með síðari tíma breytingum.

 

10. gr.  Samþykkt og gildistaka

Samþykkt þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Mýrdalshrepps, staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 103/2002, um búfjárhald o. fl., með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þegar í stað og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Landbúnaðarráðuneytinu, _________________.

 


_______________________


_______________________


Ákvæði til bráðabirgða.

Allir þeir, sem við gildistöku samþykktar þessarar eiga eða hafa í umsjá sinni búfé sem fellur undir samþykktina teljast hafa samþykki landbúnaðarnefndar til búfjárhalds.