
Lögreglan á Hvollsvelli
Slökkvilið Mýrdalshrepps

Kynningarfundur.
Sveitarstjórn
Mýrdalshrepps boðar til kynningarfundar um drög að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps
2012-2028 og umhverfisskýrslu í Félagsheimilinu
Leikskálum fimmtudaginn 3. nóvember kl. 20.00
Drögin að skipulaginu eru aðgengileg hér á heimasíðu Mýrdalshrepps
Á fundinn mætir Stefán Gunnar Thors umhverfishagfræðingur og sviðsstjóri umhverfis og skipulags hjá VSÓ Ráðgjöf, sem haft hefur yfirumsjón með vinnunni við endurskoðunina.
Sveitarstjórn vonast til þess að sem flestir íbúar sveitarfélagsins sjái sér fært að mæta á þessa kynningu.
Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri
Skrifstofa Mýrdalshrepps • Austurvegi 17 • 870 Vík • Sími: 4871210 • Fax: 4871205 • myrdalshreppur@vik.is
![]()