|
08:19 |
16. mars 2012 |
Laugardaginn 17. mars n.k. kl. 10:00Fjórða vetrarganga Ferðafélags Mýrdælinga - Hafursey Laugardaginn 17. mars n.k. verður gengið á Hafursey Nánari upplýsingar er að finna á www.myrdalur.com. Allir eru velkomnir í vetrargöngur sem og aðrar göngur á vegum Ferðafélags Mýrdælinga hvort sem þeir eru félagar eða ekki. Göngumenn þurfa ekki endilega að vera vanir.
|
|
15:39 |
01. mars 2012 |
verður laugardaginn 3. mars n.k. kl. 10:00Þriðja vetrarganga Ferðafélags Mýrdælinga er laugardaginn 3. mars kl 10:00. Gengið verður Búrfell - Neshólarétt. Göngumenn sem vilja, hittast á Arionbankaplani kl 10:00, safnast saman í bíla og aka saman að upphafsstað göngu. Aðrir mæta við upphafsstað, kl 10:10 við Neshólarétt. Verð á göngu er 700 kr fyrir félagsmenn en 1000 kr fyrir aðra. Sjá nánar www.myrdalur.com
|
|
09:15 |
07. feb. 2012 |
Tekið tillit til ábendinga notenda og reynslu fyrsta mánuðinn
Frá og með 12. febrúar verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó
bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og
til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík
til Hafnar á þriðjudögum.
Nú þegar komin er rúmlega mánaðarreynsla á Suðurlandsaksturinn hefur
fjöldi ábendinga borist frá notendum um atriði sem betur mega fara. „Við
hlustum á allar ábendingar og reynum að koma til móts við þarfir notenda í
samstarfi við Strætó bs. Við gerum okkar besta, en því miður er ekki hægt að
verða við öllum óskum,“ segir Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Bætt verður við þjónustu við Reykholt, þannig að í ferð leiðar 72 frá
Selfossi kl. 13.50 verður ekið um Grímsnes að Laugarvatni og þaðan til baka að
Selfossi gegnum Reykholt og Flúðir. Leið 73, sem fer frá Selfossi að Flúðum kl.
15.50, mun aka til baka um Reykholt og Grímsnes á leiðinni að Selfossi. Þá
verður bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum, svo nú eru í boði ferðir
á þeirri leið þrisvar í viku. Í allar þessar ferðir þarf þó áfram að panta
fyrirfram. Á sumaráætluninni, sem hefst 3. júní, verða svo tvær daglegar ferðir
hvora leið milli Reykjavíkur og Hafnar,
sem ekki þarf að panta í fyrirfram.
Ennfremur verða gerðar nokkrar breytingar á tímasetningum á leiðunum
51 og 52 um helgar.
Nánari upplýsingar um breytingarnar verður að finna á www.straeto.is.
|
|
11:07 |
01. nóv. 2011 |
Í Leikskálum fimmtudaginn 3. nóvember kl. 20:00 |
|
14:26 |
25. okt. 2011 |
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt að kynna drög að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Drögin verða aðgengileg hér á heimasíðu Mýrdalshrepps (www.vik.is). |
|
14:34 |
10. okt. 2011 |
13. október kl. 17:00 - 18:30
Fyrsti
viðtalstími sveitarstjórnarmanna í Mýrdalshreppi á þessu hausti verður þriðjudaginn 13. októbern.k. kl. 17:00 til 18:30 en þá
verða Ingi Már Björnsson og Ólafur Steinar Björnsson til viðtals.
Eins og áður
verða öll erindi sem berast í þessum viðtalstímum tekin til afgreiðslu á næsta
fundi sveitarstjórnar, sé þess óskað.
Sími
skrifstofunnar 487-1210 er opinn á sama tíma ef einhverjir óska eftir að hafa
samband símleiðis.
Sveitarstjóri
|
|
14:33 |
10. okt. 2011 |
Í Leikskálum þriðjudaginn 18. október kl. 20.00 |
|
09:10 |
03. okt. 2011 |
Bæklingunr Regnbogans 2011
Regnboginn 2011
|
|
13:18 |
27. sep. 2011 |
Frá 1. október 2011Vetraropnun |
|
10:30 |
20. sep. 2011 |
og UNESCO Global Geoparks Network |
|
16:05 |
05. sep. 2011 |
Menningarhátíð í Mýrdal 7. - 9. október 2011Minnum á mennigarhátíðina sem haldin verður helgina 7. - 9. október.
Takið helgina frá!
Undirbúiningnefnd |
|
11:55 |
24. ág. 2011 |
Víkurskóla fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20Vegna skýrslu Menntamálaráðuneytisins um skólahald í Vík, verður haldinn í Víkurskóla fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20. Skýrsluhöfundar frá ATTENTUS kynna skýrsluna. Við hvetjum foreldra, kennara og aðra sem áhuga hafa á skólamálum að fjölmenna á fundinn |
|
11:23 |
23. ág. 2011 |
frá og með 24. ágúst til 30. september 2011
Opnunartímar
|
|
11:35 |
10. ág. 2011 |
Tónleikar laugardaginn 20. ágúst 2011 kl. 20:30 að Sólbakka 6 á Flateyri
Önfirðingafélagið í Reykjavík – Hljómsveitin GRANÍT frá Vík í Mýrdal - Mannlífs- og menningarsetrið að Sólbakka 6, Hljóðverið Tankurinn á Sólbakka og styrktaraðilar bjóða öllum til tónleika í garðinum að Sólbakka 6 á Flateyri. Þar mun Hljómsveitin GRANÍT stíga á Æfingar-Sviðið í garðinum og flytja gestum hina frábæru tónlist hljómsveitarinnar ásamt gullaldar- og dægurperlum síðustu áratuga svo sem Shadows-lög. Nægt rými fyrir gesti; í garðinum á Sólbakka, upphækkuðum hlíðadrögu inn að og á Sólvöllum.
|
|
10:42 |
27. júl. 2011 |
Það eru 26 skráðir keppendur á
unglingalandsmótinu 2011 auk þess verða
klappstýrurnar okkar með sýningaratriði á laugardeginum. USVS er með
fótboltalið í flokki drengja 15-16 ára og það er búið að stofna vináttu
lið milli USVS og UDN (Búðardal) í flokki 11-12 ára stráka einnig í
fótbolta. Þá eru keppendur í ýmsum
greinum frjálsra íþrótta og einnig í einstaklingskeppni í fótbolta. Hópurinn
sem að fer frá USVS telur í allt um70 manns.
Það verður hægt að fylgjast með framgangi mótsins á www.ulm.is
þar inn koma úrslit í lok hvers keppnisdags.
|
|
13:35 |
15. júl. 2011 |
Umferð gæti komist á nýja brú á laugardag eða í síðasta lagi á sunnudag
Brúarsmíðin við Múlakvísl hefur gengið það vel að nú er reiknað með að hægt verði að hleypa umferð á brúna á laugardag eða sunnudag.Eftir að búið verður að veita ánni undir nýju bráðabrigðabrúna, sem gert verður síðdegis í dag föstudag eða kl. 17:00, verður staðan metin með tilliti til þess hvenær hægt verður að hleypa umferð á brúna og opna þar með Hringveginn að nýju. Tímasetningar á þessari opnun verða ekki endanlegar fyrr en á laugardagsmorgun. Nánari upplýsingar veitir: G. Pétur Matthíasson, upplýsingarfulltrúi s. 522-1008/865-3163
|
|
13:33 |
15. júl. 2011 |
Aukinn gangur í brúarsmíðinni
Aukinn gangur í brúarsmíðinniHlé verður gert á ferjuflutningum yfir Múlakvísl milli 17 og 20/21 í dag Brúarsmíði við Múlakvísl gengur mun hraðar fyrir sig en reikna mátti með. Brúin sem slík verður tilbúin í dag. Stefnt er að því að hleypa fljótinu undir nýju brúna kl. 17:00 í dag. Meðan það verður gert er nauðsynlegt að gera hlé á ferjuflutningum fólks og bíla yfir Múlakvísl. Þegar búið verður að veita fljótinu undir bráðbrigðabrúna mun taka 3-4 klukkutíma fyrir ána að setjast á nýjan leik þannig að unnt verði að aka aftur yfir með fólk og bíla. Jarðýtur munu útbúa nýtt vað áður en ferjuflutningar hefjast aftur. Ferjuflutningum verður því hætt tímabundið milli klukkan 17:00 og 20:00/21:00. Hvenær opnað verður aftur ræðst af því hvernig og hve fljótt áin sest aftur og hvað langan tíma tekur að útbúa öruggt vað. Því hefur verið ákveðið að lengja í kvöld þann tíma sem ferjað er yfir ána, ekki verður hætt kl. 23:00 heldur haldið áfram meðan þörf er. Nánari upplýsingar veita G. Pétur Matthíasson, upplýsingarfulltrúi s. 522-1008/865-3163
|
|
13:28 |
11. júl. 2011 |
Fundur ferðaþjónustuaðila í Mýrdal haldinn á Ströndinni mánudagsmorguninn 11. júlí 2011 lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í kjölfar lokunar þjóðvegar 1 um Mýrdalssand. ÞjóðveFundur ferðaþjónustuaðila í Mýrdal haldinn á Ströndinni mánudagsmorguninn 11. júlí 2011 lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í kjölfar lokunar þjóðvegar 1 um Mýrdalssand. Þjóðvegur 1 er lífæð íbúa og atvinnulífs á svæðinu. |
|
08:42 |
11. júl. 2011 |
Sveitarstjórnir Skaftárhrepps og Mýrdalshrepps senda frá sér eftirfarandi tilkynningu.
Áskorun
Sveitarstjórnir Skaftárhrepps og Mýrdalshrepps senda frá sér eftirfarandi tilkynningu.
Í ljósi þeirra miklu áfalla sem dunið hafa yfir samfélögin á undanförnum mánuðum af völdum náttúruhamfara, nú síðast hlaupið í Múlakvísl sem lokar hringveginum um óákveðin tíma, skora sveitarstjórnirnar á samgönguyfirvöld að ráðast nú þegar í úrbætur svo vegurinn verði opnaður eða bílar ferjaðir yfir á allra næstu dögum. Slíkt var gert fyrir 50 árum og hlýtur að vera mögulegt með nútíma tækjakosti á 21 öldinni.
Lokun sem þessi hefur víðtæk áhrif á samfélagið allt og ekki síst ferðaþjónustuna sem byggir ársafkomu sína að miklu leiti á þeim vikum sem framundan eru.
Nú þegar hefur ferðaþjónustan og störf tengd henni skaðast mikið.
Hringvegurinn er lífæð þessara sveitarfélaga og í ljósi þeirra náttúruhamfara sem dunið hafa yfir samfélögin síðustu mánuði, er ljóst að til viðbótar við það, er hrun ferðaþjónustunnar algjört.
Þá er öryggi íbúa einnig ógnað þar sem sjúkrabílar á svæðinu eru ekki þannig útbúnir að þeir geti flutt sjúklinga yfir Fjallabaksleið. Þyrla þyrfti skilyrðislaust að vera til staðar á svæðinu á meðan vegasamband er rofið.
Það er skýlaus krafa sveitarfélaga beggja vegna Múlakvíslar að þjóðvegur 1 við Múlakvisl verði orðinn opinn allri umferð fyrir næstu helgi. |
|
15:01 |
06. júl. 2011 |
Velkomin í Kötlu jarðvang
Glöggir vegfarendur hafa líklega tekið eftir að sett hefur verið upp nýtt skilti við bæjarmörkin áður en ekið er inn í Vík að vestanverðu. Um er að ræða upplýsingaskilti um Kötlu jarðvang en sambærilegum skiltum hefur verið komið fyrir á Hvolsvelli, Kirkjubæjarklaustri og við Seljarlandsfoss. Á næstu árum er stefnt að því að ráðast í frekari merkingu merkilegra staða og svæða innan jarðvangsins.
Jarðvangurinn Katla nær yfir sveitarfélögin Rangárþing eystra, Skaftárhrepp og Mýrdalshrepp og er nú í umsóknarferli að European Geoparks Network (EGN). Markmiðið með stofnun jarðvangsins er að koma jarðminjum svæðisins á framfæri, vernda þær og stuðla að sjálfbærri efnahagslegri þróun innan hans með því m. a. að þróa ferðamennsku á sviði jarð- og náttúrufræða (geotourism). Sjá nánar á www.katlageopark.is. |