Handverkshúsið

 

 

Tréútskurður
 

Leiðbeinandi er Jón Adolf sem er einn færasti tréútskurðarmeistari á Íslandi og hefur haldið útskurðarnámskeið í mörg ár.  Nánar um Jón má finna á slóðinni:
http://www.jonadolf.com

Þátttökugjald er 16 þúsund krónur og er allt innifalið í námskeiðinu; efni og verkfæri.  Þátttakendur þurfa ekki að koma með neitt og engan grunn að hafa í tréútskurði þar sem um grunnnámskeið er að ræða.  Þeir sem eitthvað hafa skorið út fá jafnframt auka leiðbeiningu sem hentar þeim.

Skráning og nánari upplýsingar um staðsetningu og fleira veitir Áslaug Vilhjálmsdóttir í síma 487-1163 eða 865-7047