Sýning um Skaftfelling 1. hluti fékk kr. 700.000  
Í umsókn Menningarfélags um Brydebúð kemur m.a. fram að: "Í skemmu gengt Brydebúð bíði vélbáturinn Skaftfellingur þess að verða tilhlýðilegur sómi sýndur.  Áformað er að framkvæma á honum lágmarksviðgerðir til að gera hann sýningarhæfan en ekki er gert ráð fyrir að endursmíða skipið.  Verkefnið sem sótt er um styrk til felst í að opna sýningu um Skaftfelling og sögu samgangna við hafnlausa strönd Suðurlands.

Mýrdalur – mannlíf og náttúra – Katla fékk kr. 400.000  
Í umsókn Menningarfélags um Brydebúð kemur fram að: "Fyrsta sýningin sem sett var upp í vestursal Brydebúðar í júní 2000 var nefnd Mýrdalur - mannlíf og náttúra.  Þar er fjallað um náttúruna sem umlykur Mýrdalinn, hafið og landið, með áherslu á Kötlu sem bíður að fjallabaki og hefur haft mikil áhrif á mannlífið. Hugmyndir voru uppi um að gera Kötlu ítarlegri skil en takmarkað fjármagn kom í veg fyrir það.  Verkefnið sem hér er sótt um styrk til felst í því að auka sýninguna lífi með því að kaupa aðgang að tiltæku efni, fréttamyndum og tölvumódelum og sýna á skjá eða tjaldi.

Regnboginn – List í fögru umhverfi fékk kr. 200.000 - Menningarmálanefnd Mýrdalshrepps sótti um styrk í menningarhelgina góðu sem haldin var fyrstu helgina í október s.l.

Alls voru veittir 55 styrkir samtals um 21.7 milljón króna.  Hæsta styrkinn, 2 milljónir króna, hlaut verkefnið Pompei norðursins í Vestmannaeyjum. Sjá nánar á heimasíðu sass.is