Á árinu 1980 tóku nokkrir áhugamenn sig til og gáfu út bækling
undir nafninu Leiðarlýsing, Vestur-Skaftafellssýsla.
Í bæklingnum er lýst öllum helstu leiðum og kennileitum í sýslunni með stuttu
ágripi af sögu og náttúrufari. Bæklingnum fylgdi kort frá Landmælingum Íslands
og var útgáfan fjármögnuð með auglýsingum.
Gylfi Júlíusson þáverandi vegaverkstjóri hafði frumkvæði að útgáfunni og valdi hann með sér menn sem hann taldi gagnlega verkefninu. Það voru þeir Sigþór Sigurðsson símaverkstjóri sem þekkti afar vel til svæðisins alls frá starfi sínu, Jón Valmundsson brúarsmiður sem einnig hafði starfað um alla sýsluna, Björgvin Salómonsson skólastjóri sem valinn var vegna ritfærni og Guðmundur Elíasson en frændi hans átti prentsmiðju.
Bæklingurinn kom út fyrir verslunarmannahelgina 1980 og tóku þeir
útgefendur sér stöðu við Jökulsá á Sólheimasandi og við Súlu á Skeiðarársandi og
afhentu öllum ferðamönnum sem komu inn í sýsluna um þá helgi eintak af
bæklingnum.
Einnig var bæklingurinn seldur í verslunum og á bensínstöðvum á svæðinu.
Að öllum líkindum er hér um að ræða fyrsta ferðamannabæklinginn með þessu sniði sem gefinn hefur verið út á Íslandi og er framtak Gylfa og félaga því merkilegt.
Einhver hagnaður varð af útgáfunni og tók það þá félaga 27 ár að ákveða hvernig verja skyldi hagnaðinum.
Föstudaginn 27. apríl s.l. boðuðu þeir fulltrúa Byggðasafnsins í
Skógum, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps á sinn fund á veitingahúsið Ströndina í
Vík. Þar afhentu þeir þessum fulltrúum myndir feðganna Vigfúsar Sigfússonar og
Gunnars G. Vigfússonar frá heimsóknum forsetanna Sveins Björnssonar (1944),
Ásgeirs Ásgeirssonar (1956) og Ólafs Ragnars Grímssonar (1998) í sýslunna.
Um er að ræða 380 myndir og búið er að nafngreina nánast allar persónur sem
sjást á myndunum. Möppur með myndunum liggur frammi í Byggðasafninu í Skógum og
sveitarfélögin munu nýta sér myndirnar á ýmsa vegu.