Landgræðsla ríkisins, með stuðningi Vegagerðarinnar og heimamanna, hefur
hafið aðgerðir til að hefta öskufok á Sólheimasandi í Mýrdal. Tilbúinn áburður
verður borinn á og grasfræblöndu sáð og er vonast til þess að árangur sjást
strax í sumar.
Takist aðgerðirnar mun gróðurinn sem upp kemur draga verulega úr öskufoki á
sandinum og tryggja öruggari umferð á þjóðveginum. Þetta kemur fram á heimasíðu
Langræðslunnar.
Sólheimasandur er meðal þeirra svæða sem urðu hvað verst úti af völdum öskufalls
í eldgosinu í Eyjafjallajökli á dögunum. Tilgangurinn með aðgerðunum nú er að
endurheimta að einhverju leyti lífsgæði íbúa á þessu svæði, auka möguleika til
áframhaldandi búsetu og tryggja betur umferðaröryggi á Sólheimasandi. Verkið
verður unnið að stærstum hluta af heimamönnum en starfsmenn Landgræðslunnar hafa
umsjón með því.
Í ár verður sáð í um 400 hektara, en um er að ræða hluta af stærri
viðbragðsáætlun. Þá er nauðsynlegt, segir Landgræðslan, er að grípa til aðgerða
á mun fleiri svæðum á láglendi, s.s. á Skógasandi og við Svaðbælisá og
Markarfljót, ef takast á að hefta eða a.m.k. draga úr öskufoki í byggð. Hefur
landgræðslan mótað ákveðnar tillögur um hvernig staðið skuli að uppgræðslu og
endurreisn á þessu svæði og mun umhverfisráðherra leggja þær fyrir fyrir
ríkisstjórn á næstu dögum.