Granít-menn og konur farin heim til Víkur í Mýrdal


07.02.2010
Eins og kunnugt er var komið á vinabæjarsambandi Stokkseyrar og Víkur í Mýrdal á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri s.l. sumar. Stokkseyrarhöfn er nú höfn Víkurbúa sem hafa ekki haft slíka aðstöðu fyrr en nú.

Hljómsveitin Granít í Vík tók síðan á Bryggjuhátíðnni við hlutverki Stokks-Eyrarbakka hljómsveitarinnar NilFisk sem Hrútavinahljómsveit og heitir nú - Hrútavinabandið Granít.

Hljómsveitin Granít og makar voru sérstakir gestir Stokkseyringa á þorrablótinu um helgina. Komu á föstudaginn og gistu á gisthúsinu glæsilega, Kvöldstjörnunni á Stokkseyri.
Héldu þau síðan austur til Vikur um miðjan dag í dag, sunnudag.

Meðfylgjandi mynd af hópnum var tekin á kveðjustundinni við Íþróttahúsið þar sem handsöluð voru næstu skrefin í þessu frábæra vina- mannlífs- og menningarsambandi Stokkseyrar og Víkur í Mýrdal.

Bestu þakkir Hrútavinabandið Granít og makar.



Skráð af: Björn Ingi Bjarnason