Eftirfarandi ályktun var samþykkt:
,,Stjórn SASS ítrekar afstöðu samtakanna um nauðsyn tvöföldunar Suðurlandsvegar
á milli Selfoss og Reykjavíkur. Við forgangsröðun framkvæmda í vegagerð hlýtur
tvöföldun Suðurlandsvegar að vera í fyrsta sæti. Kemur þar margt til. Í fyrsta
lagi er mjög mikil og vaxandi umferð um Suðurlandsveg. Í öðru lagi er slysatíðni
á veginum há og því brýn nauðsyn ...á úrbótum. Í þriðja lagi liggur fyrir að
arðsemi tvöföldunar er mjög mikil, sbr. svar samgönguráherra við fyrirspurn á
Alþingi 11. ágúst sl. Í fjórða og síðasta lagi er ljóst að almenningur telur
þessa framkvæmd langbrýnasta úrlausnarefnið í samgöngumálum þjóðarinnar, sbr.
nýgerða skoðanakönnun Gallup. Þá liggur fyrir að skipulagsmál standa ekki í vegi
fyrir því að hægt sé að hefja verkið og nú þegar er hluti leiðarinnar tilbúinn
til útboðs hjá Vegagerðinni.
Í ljósi alls þessa skorar stjórn SASS á Alþingi og samgönguráðuneyti að séð
verði til þess að tvöföldun Suðurlandsvegar verði forgangsverkefni.