Á síðasta ári voru nokkrir ferðamenn hætt komnir í fjörunni þegar þeir hugðust bjarga hval sem var að reka og óðu út í sjó. Eftir þessa atburði og ýmsa fleiri hófust miklar umræður í fjölmiðlum um hvort ekki þurfi að merkja hættulega staði. Þó var enginn einn aðili tilbúinn til að taka á sig ábyrgð og skilgreina hvaða staðir í náttúru Íslands séu hættulegir og hverjir ekki og sama gilti um kostnaðinn við að koma upp merkingum.
Að sögn Sveins Pálssonar sveitarstjóra í Mýrdalshreppi höfðu aðilar frá Kynnisferðum samband við hann síðastliðið haust og lýstu yfir áhuga á að kosta gerð og uppsetningu viðvörunarskiltis í Reynisfjöru en Kynnisferðir hafa reglulega viðkomu í fjörunni. Á sama tíma lýstu forsvarsmenn Hótels Dyrhólaeyjar yfir áhuga á að koma að málinu. Sveinn tók síðan að sér að hafa samband við landeigendur, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umhverfisstofnun og Ferðamálastofu.  Allir þessir aðilar tóku síðan höndum saman með þeim árangri, að nú er skiltið komið í fjöruna. Af því tilefni var efnt til smá samkomu í Reynisfjöru þar sem Sveinn Pálson rakti aðdraganda að tilkomu þessa skiltis í fjörunni. Að lokum var öllum boðið til kaffidrykkju í kaffihúsinu í Görðum sem stendur nánast á fjörukambinum.

Texti og ljósmyndir: Jónas Erlendsson/is