Mýrdælingur heiðraður á Stokkseyrarbryggju
Stokkseyrarbryggja hefur á síðustu fimm árum fengið nýtt og
verðugt hlutverk eftir að útgerð lagðist þar af síðla á síðustu öld og færðist
til Þorlákshafnar.
Nú er Stokkseyrarbryggja vettvangur mannlífs og menningar af ýmsu tagi eftir að
Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi fann bryggjuna í fjörunni, gleymda flestum
og tóku Hrútavinir bryggjuna í fóstur og eiga hana nú skuldlausa með öllu og án
veðsetninga. Glæsilegt Svið hefur verið byggt á bryggjunni sem þolir veður og
brim að vetri. Þá er fremsti hluti bryggjunnar lendingarstaður fyrir þyrlur
Landhelgisgæslunnar þegar við á.
Hápunktur mannlífs á Stokkseyrarbryggju á sumri hverju er Bryggjuhátíð í júlí
sem í ár var óvenju vegleg þar sem Bryggjuhátíðin var fimm ára og
Hrútavinafélagið fagnar 10 ára afmæli sínu á þessu ári.
Á Bryggjuhátíðinni í ár heiðraði Hrútavinafélagið mann og annan eins og félagið
á vana til alls tuttugu manns. Tíu Stokkseyringa fyrir ýmis störf í
Stokkseyrarsamfélaginu síðustu ár og áratugi. Síðan voru heiðraðir tíu
einstaklinga fyrir mannlífs- og menningarstörf Hrútavina á tíu ára starfstíma
Hrútavina 1999 – 2009.
Meðal þeirra var Mýrdælingurinn Kristinn Jóhann Níelsson skólastjóri
Tónlistarskóla Mýrdælinga í Vík í Mýrdal; fyrrum skólastjóri Tónlistarskóla
Önundarfjarðar og Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Mætti Kristinn til
Bryggjuhátíðar með Hljómsveitinni GRANÍT í Vík og léku þeir á fjölmennu
Bryggjuballi.
Í lokin voru þeir gerðir að sérstakri hljómsveit Hrútavina og heita nú;
Hrútavinabandið- GRANÍT og munu þeir taka virkan þátt í mannlífi Vestfirðinga á
Suðurlandi og víðar næstu misseri.
Hér má sjá myndband frá
Stokkseyrarbryggju er Hrútavinabandið-GRANÍT flytur lokalagið á Bryggjuballinu.
Það er norska sigurlagið frá Euróvison í vor með staðbundnum texta eins og heyra
má.