Sýndu hvað í þér býr!

Námskeið í félagsmálafræðslu í Vík 24. mars

Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið í Grunnskóla Mýrdalshrepps 24. mars. Námskeiðið byrjar 18:00 og stendur til 22:00. Kennari á námskeiðinu er Sigurður Guðmundsson.

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er að sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Námskeiðsgjald er 5000 þúsund krónur.  

Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands hafa staðið fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum sem og öðrum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum.

Farið er í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, þ.e. að taka til máls, framkomu, ræðuflutning, raddbeitingu, skipan ræðu o.fl. Einnig er kennt ýmislegt sem við kemur fundahöldum eins og fundareglur, boðun funda, fundaskipan, dagskrá funda, umræður, meðferð tillagna, kosningar o.fl..