Betri byggð í Mýrdal eru áhugasamtök íbúa um bættar samgöngur, jarðgöng um Reynisfjall og byggingu sjóvarnargarða við Vík. Í Berti byggð í Mýrdal 124 félagar úr sveitafélaginu, frá Sólheimabæjum að Höfðabrekku. Á íbúafundinn mættu á fimmta tug, fjölmargir tóku til máls og fór fram málefnaleg umræða. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri var gestur fundarins. Hann fór yfir sögu þorpsins varðandi sandfok og þá miklu vá er nú steðjar að. Hann sagði að alltaf minnkar þó landið og bilið þrengist sem við höfum til að koma upp almennilegum sandfoksvörnum. Neyðarráðstafanir hafa nú nýverið verið gerðar með sandgirðingum. Hvergi á landinu nær melgresið að standast jafn vel ágang sjávar. Fundarstjóri tók saman örstutt yfir helstu mál fundarins, sjóvarnargarð í rofabakkann strax ekki við flóðvarnargarðinn, öruggan veg, stutt jarðgöng, vernda ræktað land, lítið fuglalíf á Dyrhólaósbökkunum og Mýrdalurinn er ekki ósnortið land, mikið framræst. Byggja ákvörðunartöku á rökum og að íbúar standi saman.
Kveða
f.h.Betri byggð í Mýrdal
Bryndís F. Harðardóttir.