Íbúar í Mýrdalshreppi og nágrannasveitarfélögum kunnu vel að meta framtakið og fjölmenntu á leikinn og skapaðist mjög góð stemmning í húsinu. Alls söfnuðust 180 þúsund krónur og tók Jón Þór við þeim í lok leiks. Hann ákvað á láta féð renna til Ljóssins sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.
Texti og myndir: Jónas Erlendsson/IS