Fimmtudaginn 23. október s.l. var haldinn fundur um stofnun áhugamannasamtaka um bættar samgöngur, jarðgöng um Reynisfjall og byggingu sjóvarnargarða við Vík.
Á fundinn mættu 70 manns og 65 gerðust stofnfélagar.
Félagið heitir „Betri byggð í Mýrdal“.
Jóhannes Kristjánsson setti fundinn og fór svo yfir forsögu og framtíð.
Á fundinum var kosin stjórn og samþykktar voru tvær tillögur þar sem skorað er á annars vegar sveitarstjórn Mýrdalshrepps og hinsvegar samgönguráðherra.

   Tillaga I                             Tillaga II

 

                               Fundargerð