VITINN 16. TBL. 14. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGINN 21. APRÍL 2010
Sumardagurinn fyrsti - Skógar
Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið
ákveðið að fella niður fyrirhugaða helgistund og söngstund
í Skógakirkju og barnaskólahúsinu frá Litla Hvammi,
sem vera átti á sumardaginn fyrsta, 22. apríl nk.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson
Bænastund í Minningarkapellu
sr. Jóns Steingrímssonar.
Alla miðvikudaga kl. 18.00.
Sóknarprestur
Á DÖFINNI
22.04.2010 sumardagurinn fyrsti: Sumarhátíð Leikskólans Suður-Vík.
24.04.2010 Sumri fagnað á Kirkju-bæjarklaustri. í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli kl: 14:00.
24.04.2010 Aðalfundur skógræktarfélagsins Merkur á Hótel Kirkjubæjarklaustri kl. 13.30
25.04.2010 Fermingarguðsþjónusta í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal kl. 13:30
25.04.2010 kl. 14:00 Félagsheimilið Kirkjuhvoll. "Í safni með síðumönn-um"
26.04.2010 Almennur borgarafundar í félagsheimilinu Kirkjuhvoli kl. 20:00.
29.04.2010 Prjónakaffihúsið á Halldórskaffi kl. 20.00
30.04.2010 Raularinn 2010 haldinn í Leikskálum, Vík
Sumarhátíð
Leikskólans Suður-Vík
Sumardaginn fyrsta í Leikskálum kl: 14:00
Söngur og leikþættir,
góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, ömmur og afa.
Foreldrafélag leikskólans verður með kaffisölu
til fjáröflunar fyrir félagið.
Verð: Fullorðnir 1000 - Börn: 7-16 ára 500 - Frítt fyrir 6 ára og yngri
Hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur góðan dag
Börn og starfsfólk Suður-Vík --- Og Foreldrafélagið.
Fögnum sumri á Kirkjubæjarklaustri.
Kæru sveitungar og gestir.
Fögnum sumarkomu saman í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli næstkomandi laugardag 24. Apríl kl: 14:00.
Bingó, skemmtiatriði og kaffihlaðborð að hætti okkar kvenfélagskvenna.
Hestamenn mæta með gæðinga sína og teyma undir börnunum.
Hlökkum til að sjá ykkur öll í sumarskapi.
Oft var þörf en nú er nauðsyn:
Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps.
Ath breytta dagsetningu!!!!!
BORGARAFUNDUR
Sveitarstjórn Skaftárhrepps
boðar til almenns borgarafundar
í félagsheimilinu Kirkjuhvoli
mánudaginn 26. apríl 2010 kl. 20:00.
Umræður um stöðu og horfur
í lok kjörtímabils.
Sveitarstjórn
Skeiðflatarkirkja í Mýrdal
Fermingarguðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
nk. sunnudag, 25. apríl, kl. 13:30, ef aðstæður leyfa.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.
Fermdir verða:
Marinó Freyr Steinþórsson, Ási, 871 Vík
Þorsteinn Björn Einarsson, Ytri-Sólheimum 2, 871 Vík
Haraldur M. Kristjánsson
Sóknarprestur
Netverslunin - www.fallegfot.is
Mikið úrval að nýjum og ódýrum fötum, sendi um land allt.
Nýjar sendingar koma reglulega - skráið ykkur á póstlistann og fylgist með.