Vísitasía biskups Íslands í Skaftafellsprófastsdæmi.
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson vísiterar Skaftafellsprófastsdæmi
dagana 18. - 25. ágúst nk.
Síðast vísiteraði herra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup Íslands, Austur- og
Vestur-Skaftafellssýslur, árið 1994.
Biskup heimsækir kirkjur og söfnuði og kynnir sér kirkjulegt starf í
Skaftafellssýslunum báðum.
Á öllum kirkjum verða helgistundir eða guðsþjónustur eftir atvikum, ásamt fundum
með sóknarprestum, sóknarnefndum og starfsfólki safnaðanna. Biskup heimsækir
einnig dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra þar sem þau eru og vonast einnig
eftir að fá að hitta börnin í söfnuðunum, ýmist í skólunum eða kirkjunum, eftir
aðstæðum.
Með biskupi í för verður eiginkona hans frú Kristín Guðjónsdóttir, prófastur
Skaftafellsprófastsdæmis, séra Haraldur M. Kristjánsson í Vík og eiginkona hans,
frú Guðlaug Guðmundsdóttir.
Sóknarfólk í prófastsdæminu er hvatt til að mæta í kirkjur sínar og fagna góðum
gestum.
Vísitasían hefst í Bjarnanesprestakalli í Austur-Skaftafellssýslu,
og verður dagskráin þar sem hér segir:
Hoffellskirkja í Nesjum, laugardagurinn 18. ágúst kl. 13:00.
Bjarnaneskirkja í Nesjum, 18. ágúst , kl. 16:00.
Hafnarkirkja, sunnudagurinn 19. ágúst, kl. 14:00.
Stafafellskirkja í Lóni, 19. ágúst, kl. 20:00.
Í Kálfafellsstaðarprestakalli sem hér segir:
Kálfafellsstaðarkirkja, mánudagurinn 20. ágúst kl. 14:00.
Eftir guðsþjónustuna verður kirkjukaffi á Smyrlabjörgum í tilefni af 80 ára
vígsluafmæli Kálfafellsstaðarkirkju.
Brunnhólskirkja á Mýrum, mánudaginn 20. ágúst kl. 21:00.
Hofskirkja í Öræfum, þriðjudaginn 21. ágúst, kl. 14:00.
Í Kirkjubæjarklaustursprestakalli sem hér segir:
Bænhúsið að Núpstað, þriðjudagurinn 21. ágúst, kl. 17:00.
Kálfafellskirkja í Fljótshverfi, 21. ágúst, kl. 18:30.
Minningarkapella séra Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjarklaustri, 21. ágúst, kl.
21:30.
Prestsbakkakirkja á Síðu, miðvikudagurinn 22. ágúst, kl. 16:00.
Langholtskirkja í Meðallandi, 22. ágúst, kl. 21:00.
Grafarkirkja í Skaftártungu, fimmtudagurinn 23. ágúst, kl. 14:00.
Þykkvabæjarklausturskirkja í Álftaveri, 23. ágúst, kl. 20:00
Í Víkurprestakalli í Mýrdal verður dagskráin sem hér segir:
Reyniskirkja, föstudaginn 24. ágúst, kl. 20:30.
Skeiðflatarkirkja, laugardaginn 25. ágúst, kl. 14:00.
Sólheimakapella, 25. ágúst, kl. 16:30.
Heimsókn biskupshjónanna lýkur svo í Vík í Mýrdal með guðsþjónustu í
Víkurkirkju, laugardaginn 25. ágúst, kl. 20:00.
Börnin eru sérstaklega hvött til að koma með foreldrum sínum og forráðamönnum í
sóknarkirkjur sínar þegar biskup heimsækir þær.
Fólk í Skaftafellssýslum er vinsamlega beðið um að kynna sér vel dagsetningar og
tímasetningar atburðanna og fylgjast með auglýsingum og tilkynningum
sóknarnefnda sinna og sóknarpresta.
Haraldur M. Kristjánsson
prófastur Skaftafellsprófastsdæmis