Víkurkirkja í Mýrdal
Góðir gestir í heimsókn

 
Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í Mýrdal,
sunnudaginn 20. apríl nk.  kl. 11:00.

 
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, sem er á ferð um Suðurland
þessa helgi, annast söng og messusvör auk þess sem 
hann leiðir almennan söng kirkjugesta. 
Stjórnandi er Þorgerður Ingólfsdóttir.
Nær allur söngur í guðsþjónustunni verður án undirleiks (agapella).

 
Það er óþarft að kynna Þorgerði Ingólfsdóttur og 
frábært starf hennar með kór Menntaskólans við Hamrahlíð 
til fjölda ára þar sem hún og kórar hennar eru 
vel þekktir bæði hérlendis og erlendis. 

 
Ég hvet sóknarbörn mín í öllum sóknum prestakallsins
til að fjölmenna í Víkurkirkju að morgni næsta sunnudags.
Sérstaklega langar mig til að biðja fermingarbörn 2008 og
foreldra þeirra til að fjölmenna.
Athugið að guðsþjónustan hefst kl. 11:00.

 
Guðsþjónustan sem vera átti í Reyniskirkju 
kl. 14:00 þennan sama dag,  fellur niður.

 
Tökum vel á móti góðum gestum.

 
Sóknarprestur