-Undankeppnin Söngkeppni Samfés-
Suðurlandskeppni haldin í
Vík í Mýrdal 3-4. febrúar 2007
Félagsmiðstöðin
OZ hélt síðustu helgi Undankeppni Söngkeppni Samfés. Allir keppendur stóðu sig
mjög vel og voru sínum félagsmiðstöðvum til sóma með frábær atriði, hvert öðru
betra.
Þetta skiptið komust Félagsmiðstöðin Hellu, Fjörheimar-Reykjanesbæ,
Skjálftaskjól-Hveragerði, Bólið-Mosfellsbæ og Tvisturinn-Hvolsvelli áfram í
aðalkeppnina.
Við fengum 15 félagsmiðstöðvar í heimsókn og var fjöldi þátttakenda og gesta á Söngkeppninni um 500 talsins. Fjölbreytt og skemmtileg afþreying setti svip sinn á dagskránna og voru allir unglingarnir til fyrirmyndar og tóku virkan þátt og skemmtu sér vel. Arnar Snær Ágústsson og Anna Björk Sigurðardóttir tóku þátt fyrir hönd OZ og stóðu sig með mikilli prýði.
Ég vil sérstaklega þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum, félagsmiðstöðinni Garðalundi, eigendum gististaða, starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar, félögum og styrktaraðilum sem gerðu okkur í “OZ” kleyft að halda svona stóra og skemmtilega keppni. Hljómsveitin Epoxy frá Vík hélt uppi góðu stuði á ballinu.
Dómnefndina skipuðu:
Anna Björnsdóttir -Tónmenntakennari
Ingólfur Þórarinsson – Idol-stjarna sem einnig tryllti salinn með nokkrum lögum.
Guðmundur Pétur Guðgeirsson – Framkvæmdarstjóri BVT og trommari Granít.
Kristinn Níelsson – Tónskólastjóri
Ragna Björg Ársælsdóttir – Nemi og söngkona
Það var sýnilegt og umtalað af þjónustuaðilum og íbúum í Vík að unglingarnir hafi verið kurteisir og jákvæðir. Það er mikilvægt að við vinnum saman og leggjum árherslu á faglegt tómstundastarf þar sem lögð er áhersla á forvarnir, fræðslu og örvun félagsþroska og jákvæðra samskipta.
Hægt verður að sjá myndir á heimasíðu OZ og Mýrdalshrepps á næstu dögum. http://vik.is/ http://oz.xblogg.is/
Victor Berg Guðmundsson
Æskulýðs- og tómstundafulltrúi
Vík í Mýrdal