KÖTLUHLAUP 2007

LAUGARDAGINN 8. SEPTEMBER - VÍK Í MÝRDAL

 

Laugardaginn 8. september kl. 12:00 verður hið svokallaða “Kötluhlaup” í Vík í Mýrdal. Þetta er í þriðja sinn sem hlaupið er haldið, fyrstu tvö árin var Vegagerdin í Vík framkvæmdaraðili hlaupsins en nú hefur Mýrdalshreppur tekið við framkvæmdinni og mun gera það næstu ár. Vegalengdirnar eru 10 km, 21 km og 42 km. Þátttakendur geta valið um hvort þeir vilja hlaupa eða hjóla leiðina. Hópar eða fyrirtæki geta líka tekið þátt sem boðhlaups- eða boðhjólalið og skipt leiðinni á milli sín. Bílar munu fylgja þátttakendum.

 

 

Upphaf Kötluhlaupsins:

Gylfi Júlíusson hætti eftir áratuga starf sem rekstarstjóri Vegagerðarinnar í Vík, og þar sem hann hefur alltaf verið að bíða eftir Kötluhlaupi , þá ákváðu nokkrir Vegagerðarstarfsmenn að hlaupa svokallað Kötluhlaup þ.e. frá Kúðafljóti í Vík um 42 km honum til heiðurs.

 

 Staður og tími:

Kötluhlaupið hefst kl. 12:00 við íþróttamiðstöðina í Vík. Hjólreiðamenn verða ræstir kl. 12:30.

 

 Vegalengd og hlaupaleið:

Vegalengdirnar eru 10 km, 21 km og 42 km (sjá kort). Kötluhlaupið byrjar og endar við íþróttamiðstöðina á frjálsíþróttavellinum. Allar vegalengdirnar eru vel merktar og án tímatöku, aðalatriðið er að komast í mark og hafa gaman af þessu.

 

 Aðstaða:

Þátttakendur hafa búningsaðstöðu í íþróttamiðstöðinni í Vík.

 

Skráning:

Þátttökustaðfesting sendist á netfangið: tomstundafulltrui@vik.is.

 

Aðrar upplýsingar:

Það er auðvitað hjálmaskylda hjá þeim sem ætla að hjóla og eru allir keppendur á eigin ábyrgð í hlaupinu. Nánari upplýsingar veitir Victor Berg Guðmundsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi í síma: 4871210 / 8213181

 

 

 

 

 

 

 

 

 

         
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og frítt í sund og eftir hlaupið.

 

 

 

 

 

 

Kötlu (boð) hlaup  2007

 

Laugardaginn 8. september

 

Dagskrá

 

Kl. 11:30      Mæting í íþróttamiðstöðinni í Vík. Skráning, spjall og kaffi.

                   Hlaupstjóri: Gylfi Júlíusson

Kl. 12:00      Hlaupstjóri ræsir hlauparana á frjálsíþróttavellinum.

 

Kl. 12:30      Hlaupstjóri ræsir þátttakendur á reiðhjólum á frjálsíþróttavellinum.

 

Kl. ?            Kötluhlaupi lokið. Kaffi, létt hressing og afhending viðurkenninga í íþróttamiðstöðinni.



                                                Hlaupaleið Kötluhlaupsins.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Frítt í sund fyrir alla eftir hlaupið.

 

Kötluhlaupið byrjar og endar við íþróttamiðstöðina á frjálsíþróttavellinum. Allar vegalengdir eru vel merktar á leiðinni.

 

Sjáumst í Kötluhlaupinu!

 

Victor Berg Guðmundsson

Æskulýðs- og tómstundafulltrúi